03.05.1921
Efri deild: 61. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2040 í B-deild Alþingistíðinda. (2231)

105. mál, einkasala á áfengi

Frsm. (Halldór Steinsson):

Það eru aðeins örfá orð, út af ræðu háttv. 2. þm. S.-M. (S. H. K.). Hann sagði, að engin takmörk væru til fyrir því, hve mikið áfengi mætti fara til lyfjabúða og lækna, eða til iðnaðar. Jeg mótmæli þessu algerlega. Því að jeg veit ekki betur en til sjeu reglugerðir um þetta alt.

En hitt er annað mál, og í því er jeg honum samdóma, að ef frv. þetta nær fram að ganga, þá geti eftirlit með framkvæmdum bannlaganna orðið tryggara en nú.

Hvað eftirlitið með lyfjabúðum snertir, þá get jeg tekið það fram, að jeg tel það aðalatriðið við frv. þetta, því jeg hefi litið svo á, að landlækni hafi verið það ofvaxið frá byrjun, hvað þá heldur nú, er lyfjabúðunum fjölgar svo mjög.

Háttv. 2. landsk. þm. (S. E.) þarf jeg ekki að svara, því að ræða hans var öll endurtekning á ræðu, sem hann hjelt hjer við 2. umr. þessa máls, og svaraði jeg henni þá, og get því eigi verið að leggja mig í það að reyna að sannfæra hann frekar.