10.05.1921
Neðri deild: 66. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2041 í B-deild Alþingistíðinda. (2235)

105. mál, einkasala á áfengi

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg þarf ekki að hafa langa framsögu, því að háttv. deild er kunnugt um, hvernig málinu er varið. Óska jeg, að frv. fari til allsherjarnefndar. Hygg jeg það best komið þar, því að hjer er ekki um fjármál að ræða. Vildi jeg einnig mælast til, að verulegar ræður um málið yrðu ekki fyr en við 2. umr.