13.05.1921
Neðri deild: 69. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2048 í B-deild Alþingistíðinda. (2246)

105. mál, einkasala á áfengi

Forsætisráðherra (J. M.):

Það er ekki rjett hjá háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.), að kenna stríðinu um, að lyfin hafa verið verri upp á síðkastið; það hefir eingöngu verið því að kenna, að þau hafa verið meira svikin en þau voru áður. Hefir jafnvel borið á þessu þar, sem eftirlit er þó mikið.