30.03.1921
Neðri deild: 30. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2068 í B-deild Alþingistíðinda. (2275)

100. mál, Ríkisveðbanki Íslands

Atvinnumálaráðherra (P. J.):

í greinargerð fyrir frv. er skýrt frá uppruna þess, og þess vegna þarf jeg ekki um hann að tala. En það er hvergi tekið fram, hvernig á því standi, að stjórnin flytur ekki þetta frv. Jeg stend upp til þess að skýra frá því.

Frumvarpið er tilbúið vegna áskorunar þingsins 1919 til stjórnarinnar. En málið var ekki tilbúið frá hendi höfundarins nógu snemma til þess, að hún gæti sjálf athugað það nógu rækilega og lagt frv. um það fyrir konung áður en þing kæmi saman. Stjórnin hafði sem sje engan tíma frá öðrum óhjákvæmilegum störfum til að átta sig á málinu, en það er mikilsvert og þarf rækilega athugun og umhugsun. Fyrir mín augu kom frv. ekki fyr en í þingbyrjun; samverkamenn mínir sáu það ekki fyr en prentað. Jeg leit líka svo á, að svo mörg stórmál væru fyrir þinginu, og heimtuðu þau svo mikið af tíma þingsins, að varlega ætti að fara í það að fjölga þeim meira. Slíkt aðeins til þess, að eitthvað af þeim yrði útundan. Það hefði að vísu verið hugsanlegt að hraða undirbúningi þessa máls ofurlítið; stjórnin hefði getað fengið málið í hendur svo sem viku eða hálfsmánaðar tíma, til að athuga það. En þá einmitt hafði stjórnin mjög mikið að gera við annað mál, og auk þess var tíminn mjer of stuttur fyrir þetta mál. Það þarf að líta á meira en efni frumvarpsins; í sambandi við það eru kostnaðaráætlanir og annað það, sem rannsaka þarf. Auk þess vakti það svo fyrir mjer, að minsta kosti áður en jeg sá frv. og talaði við höfundinn, að það væri mjög hæpið, hvort málið er tímabært nú, meðan alt er í óvissu og öngþveiti í peningasökum. Hitt er annað mál, að það getur aldrei skaðað, þó að málið sje athugað; sú vinna fer ekki til ónýtis, og þess vegna ljet jeg það í ljós, að jeg væri ekki á móti því, að málið kæmi fyrir þingið, þá er jeg var um það spurður. Annað er einnig við það unnið, að málið sje tekið til meðferðar nú, þótt það verði eigi útrætt, að það verður þá íhugað úti um land, og geta menn myndað sjer skoðun á því. En jeg býst ekki við því, að úrslit þess verði ákveðin á þessu þingi, enda teldi jeg það ekki allskostar heppilegt. Menn verða varla búnir að átta sig nægilega á málinu. Jeg segi fyrir mig, að mjer hefir enn ekki unnist tími til þess að íhuga allar þær athugasemdir og skýringar, sem höfundurinn hefir við frumvarpið gert, en eftir fljótan yfirlestur sýnist mjer frv. vera stilt í hóf á öllum stöðum og mikil vinna í það lögð. Á hinn bóginn dylst mjer það ekki, að fremur lítill árangur yrði af þessari bankastofnun, eins og nú standa sakir, og sje jeg ekki miklu tapað, þó að framkvæmd hennar dragist um eitt ár.

Jeg hefi rekið augun í það, eins og fleiri, að þál. 1919 átti aðallega við lánsstofnun fyrir landbúnaðinn, enda er þörfin brýnust þar. Jeg veit ekki, hve heppilegt það væri að slá því föstu nú, að bankinn yrði víðtækari. Það mál þarf að athugast. Jeg býst við, að mörgum þyki illa til fallið, að ræktunar- og kirkjujarðasjóði verði varið til húsakaupa og annara fyrirtækja en landbúnaðar, en út í það vil jeg ekki fara nú. Jeg sje, að margt mælir með því, að veðstofnunin verði aðeins ein, því að aðrir atvinnuvegir þurfa einnig á slíkri stofnun að halda, og þyrfti þá að stofna aðrar í því skyni, ef þessi veðbanki næði aðeins til landbúnaðar, og hygg jeg vera annmarka á því. En jeg vil engan dóm leggja á þetta að sinni, eða fara frekar út í málið.

Í stuttu máli fer um þetta mál eins og fossamálið, að það er af sömu orsökum borið fram af öðrum en stjórninni, þó að það í raun og veru ætti að vera hennar verk. Jeg býst líka við því, að þetta mál fari eins og fossamálið, að ekki vinnist tími til að útkljá það á því þingi, sem það er fyrst borið fram á, enda varla heppilegt, og er þá hægur vandi að vísa því aftur til stjórnarinnar, eftir að þingið nú hefir fjallað um það.