30.03.1921
Neðri deild: 30. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2090 í B-deild Alþingistíðinda. (2283)

100. mál, Ríkisveðbanki Íslands

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg er satt að segja hálfhissa á þessum löngu umr., sem hafa orðið um málið hjer við 1. umr. Jeg hjelt, að það væri full ástæða til að láta málið ganga áfram, svo háttv. peningamálanefnd gæti athugað það betur, eins og hún hefir lýst sig fúsa til að gera.

Viðvíkjandi því, að háttv. þm. Dala. (B. J.) sagði, að stjórnin hefði fylgst með frv. frá byrjun, skal jeg taka það fram, að jeg fyrir mitt leyti hefi ekki sjeð frv. fyr en það var lagt hjer fyrir þingið. Jeg væri því feginn, ef frv. fengi að ganga áfram, svo jeg fái tækifæri til að athuga það nánar.

Mjer finst það hálfundarlegt af háttv. nefnd að flytja fram frv., áður en hún hefir rannsakað það til hlítar. Það hefði að minsta kosti verið viðkunnanlegra, að hún hefði fyrst athugað hverja grein fyrir sig og gert sínar athugasemdir, og lagt það síðan fyrir þingið. Jeg vil þó ekki ásaka nefndina, úr því hún ætlar sjer að athuga frv. fyrir 2. umr.

Jeg veit ekki til þess, að til sje nema eitt eintak af álitinu um málið, og er erfitt fyrir alla þingmenn að eiga að lesa það sama eintak. Jeg hefi t. d. gert ítrekaðar, en árangurslausar tilraunir til þess að sjá í því tvö sjerstök atriði.

En úr því, að nefndin ætlar að halda áfram að athuga málið, vil jeg skjóta því að henni, hvort ekki mætti setja inn í frv. ákvæði, sem trygðu landbúnaðinum not af bankanum, tiltölulega við það, sem hann leggur fram til hans óbeinlínis, að minsta kosti með ræktunar- og kirkjujarðasjóðunum t. d. Þá vil jeg leiðrjetta þann misskilning, sem virtist koma fram hjá hv. 4. þm. Reykv. (M. J.) um það, að vextir sjóða þessara breyttust, því það gera þeir ekki allir. Ræktunarsjóðsvextir eru t.d. fastákveðnir með reglugerð. Ennfremur vil jeg geta þess, að það er óviðkunnanlegt, að frv. kom fram eins og nefndin væri öll sammála um þetta mál, þar sem umræðurnar virðast nú sýna, að hún er klofin, þrír öðru megin og tveir hinu megin. Vona jeg svo, að málið fái að ganga áfram að sinni að minsta kosti.