05.04.1921
Neðri deild: 35. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2099 í B-deild Alþingistíðinda. (2297)
100. mál, Ríkisveðbanki Íslands
Eiríkur Einarsson:
Það er aðeins örstutt athugasemd. Háttv. þm. Mýra. (P. Þ.) hefir fram til síðustu stundar verið með frv. þessu, og um háttv. þm. Ísaf. (J. A. J.) er það að segja, að hann setti sig aldrei upp á móti frv., þótt hann hins vegar á seinni fundum nefndarinnar hefði ýmislegt við það að athuga. Sje um flaustur að ræða, má háttv. þm. Ísaf. (J. A. J.) sjálfum sjer um kenna, er hann fekst ekki á nefndarfundi, er málið skyldi afgreiðast.