15.02.1921
Sameinað þing: 1. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í B-deild Alþingistíðinda. (23)
Rannsókn kjörbréfa
Frsm. meiri hl. 1. kjörbrjefadeildar (Sigurður Stefánsson):
Jeg gat þess í upphafi þessa máls, að kjördeildina hefði að ýmsu leyti brostið upplýsingar í öndverðu.
En þær umræður, sem seinna hafa farið fram, hafa sannfært mig um það, að æðimikil formsástæða hafi verið til þess að taka þetta umrædda fólk ekki á kjörskrá í upphafi, þó seinna hafi komið við þetta formgalli. En í minni þingtíð hefir það tíðkast, að Alþingi hefir ávalt verið „liberalt“ í svona kringumstæðum, sem sje þar sem formgallar eru, sem ekki geta ráðið úrslitum. Og út af því skal jeg geta þess, að eftir þeim upplýsingum, sem fram eru komnar, get jeg fyrir mitt leyti horfið frá ákúrum til bæjarstjórnarinnar út af málinu, enda legg jeg ekki mesta áherslu á formið í þessu máli, heldur á óhagræðið, sem stærsta kjördæmi landsins væri skapað með endurkosningu, þegar ekki er meiri ástæða til hennar en nú er. (Sig. Eggerz hlær). Hv. 2. landsk. þm. (S. E.) má hlæja; jeg er ekki fæddur með þeim ósköpum að geta aldrei látið sannfærast, og þykist heldur ekki vera orðinn svo gamall, að jeg sje vaxinn upp úr því.