14.04.1921
Neðri deild: 43. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2119 í B-deild Alþingistíðinda. (2305)

100. mál, Ríkisveðbanki Íslands

Eiríkur Einarsson:

Eins og háttv. deildarmenn muna, gerði jeg ráð fyrir því við síðustu umr. málsins að bera fram einhverjar breytingartillögur, og eru þær nú komnar á þskj. 258, og erum við tveir flutningsmennirnir. Það kom í ljós undireins við 2. umr., að ýmsir töldu frv. það helst til foráttu, að landbúnaðinum væri ekki áskilinn forgangsrjettur að lánum úr bankanum. Brtt. mín, og okkar, er því fram komin til þess að bæta úr þessu, að tryggja það, að jarðræktin sitji í fyrirrúmi. Að vísu skal jeg fúslega játa það, að í þessu máli er ekki hvað minst komið undir mönnunum, sem stjórna eiga lánveitingunum, en ekki undir bókstaf laganna einungis. En samt þarf að hafa einhver skynsamleg ákvæði um þetta, sem hvorki eru of þröng nje of víð, en tryggja þó það, sem um er að ræða og er stefnumál fyrir stofnunina. Og það er einmitt þetta, sem okkar till. gerir. Þar er vitanlega mikið lagt á vald bankastjórninni, en þó með þeirri takmörkun, að sagt er að jarðræktarfyrirtæki eigi að sitja í fyrirrúmi. Og orðið jarðrækt er notað með yfirlögðu ráði, en ekki t. d. landbúnaður yfirleitt, því það er víðara; en eins og á stendur, verður þar að gæta hófs. Hefði jeg vitanlega viljað láta þetta ákvæði ná sem lengst, landbúnaðinum í vil, en vildi ekki kveða svo ríkt að orði, að till. yrði ef til vill stefnt í hættu með því. Með brtt., eins og hún er orðuð, er auðvitað ekki skotið loku fyrir það, að veita megi lán, svo sem til húsabóta, t. d. helming til jarðræktar í strangasta skilningi og helming til nauðsynlegra húsabóta á sömu jörð; bendingin er gefin í rjetta átt, og það á að nægja.

Háttv. þm. Ísaf. (J. A. J.) sagði, að jarðræktin væri hjer á byrjunarstigi. Þetta er nú rjett og ekki rjett. Sje miðað við stærri fyrirtæki, t. d. eins og áveitur eða því um líkt, þá má þetta til sanns vegar færa, en jeg álít, að þetta skuli vera prófsteinn á því, hvort menn sjeu það trúaðir á jarðrækt landsins, að leggjandi sje eitthvað í sölurnar hennar vegna.

Trúin á framtíð landsins á að gefa þessari von byr undir báða vængi, að veðbrjef slíkrar stofnunar, sem auka vill mátt og megin jarðræktarinnar, verði seljanleg.

Þegar minst er á sparisjóðsfje landsmanna, þá mun það sönnu nærri, að það megi fremur lítið kalla, svo að þess gæti kannske ekki mikið, er kaupa á veðbrjefin, enda að ýmsu leyti rjett, að flestir hafi nóg með sitt fje að gera, og þó að einhver vildi segja um mig eins og háttv. þm. Ísaf. (J. A. J.), að af því við erum báðir útbússtjórar, ættum við að hugsa um, að útbúin hefðu sparisjóðsfje í sinni veltu, þá er jeg samt ekki vitund myrkfælinn að fylgja stefnu frumvarpsins í þessu efni. Þótt dýrtíð sje í landi, flyst ætíð mikið fje frá manni til manns, og það, sem eyðist hjá einum. safnast þá hjá hinum. Jeg geri því ráð fyrir, að altaf megi gera nokkra von um ávöxtunarfje, og þegar um þjóðþrifastofnun svo sem veðbankann, er að ræða, má ekki taka neitt sjerstakt tillit til þess, hvort til hags er eða óhags sparisjóðageymslu. Enda geri jeg ekki svo mikið úr þeim vaxtamissi, sem útbúin eða Landsbankinn yrðu fyrir.

Þá er brtt. á þskj. 290 frá háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.). Jeg held, að háttv. flm. (J. Þ.) hefði aldrei komið með þær, hefði hann verið búinn að kynna sjer vel frv. sjálft og brtt. okkar.

Meginmismunur þessara brtt. er sá, að okkar brtt. er svo einföld og skapar aðeins landbúnaðinum þennan forgangsrjett, sem hlýtur að byggjast á þál. frá 1919, en brtt. háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) veldur dreifingu í framkvæmdum stofnunarinnar, og hefir óþarfan og dýran skrifstofukostnað í för með sjer. Afleiðingin yrði því sú: að okkar brtt. miðar að því, að styrkja stofnunina og gera hana tryggilegri, en hinar veikja hana og auka erfiði og amstur með óþarfa skriffinsku.

Veiklunarmerki þessi eru hverjum manni auðsæ, sem lesa vill brtt. háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) niður í kjölinn; t. d. stendur í frv., að landsstjórnin skuli leggja 3 milj. í stofnfje bankans úr landssjóði, en eftir brtt. háttv. 3. þm. Reykv. er aðeins heimild til að verja 3 miljónum kr. í stofnfje. Er þannig samkvæmt frv. ótakmörkuð skylda, sem á landssjóði hvílir, og að auk heimild til að leggja meira fram en lágmarkið tiltekur. En á það vildi jeg benda, að ef slík ákvæði sem þau, er felast í brtt. háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) kæmust í hendur þeirrar ríkisstjórnar, sem ekki er málinu hlynt, þá er þar með upp kveðinn dauðadómur yfir stofnuninni. Þess vegna verð jeg að leggja eindregið á móti þessum brtt., enda sje jeg ekki, til hvers væri að samþykkja frv. með slíkum breytingum. Væri háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) með því að koma slíkri stofnun á fót, sem hjer er um að ræða, þá myndi hann ekki bera fram svona brtt. Annaðhvort er að greiða atkvæði með því, að framkvæmanlegt verði að stofna þennan ríkisveðbanka, eða þá að fella það hreinlega.

Það hefði þá verið nær fyrir háttv. þingmann að hallast á sveif með minni hlutanum um það, að ræktunarsjóðurinn megi alls ekki hverfa inn í þennan banka, og verði haldið út af fyrir sig áfram, eins og verið hefir. En jeg er búinn að benda á það, að eigi að byggja á rústum ræktunarsjóðsins innan vjebanda bankans, þá getur það aldrei orðið nema hokur, eins og hingað til, algerlega ófullnægjandi.

Mjer þykir vænt um, hvað háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) er bjartsýnn á framtíð landsins og framleiðslumöguleika þess, er hann heldur, að brjef jarðræktardeildarinnar verði að öllum jafnaði vel seljanleg, einnig vegna tilgangsins. Þó held jeg, að menn, eins og alment gerast nú, sjái hag sinn í því að versla annarsstaðar, og telji hyggilegra að vera við þann eldinn, sem brennur best, og ávaxti fje sitt því á öðrum stað, þar sem þeir fái sem tryggilegust vaxtabrjef.

Auðvitað fundust mjer þær ofureinfaldar og skiljanlegar, þessar ástæður hjá háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.), þegar litið er á það, að hann er fulltrúi kaupstaðanna, enda kom það fram í ræðu hans. Hann sagði beinum orðum, að það yrði togstreita milli kaupstaða og sveita, ef landbúnaðurinn hefði forgangsrjett að lánunum úr þessum sjóðum, sem rynnu inn í bankann.

Jeg get nú þegar látið staðar numið. Brtt. þær, sem jeg hefi verið að mæla á móti, finst mjer allar miði að því að slá málinu á dreif og gera stofnunina losaralega) og eiga þær að því leyti samstöðu. Vona jeg því, að allir góðir menn, sem er það áhugamál að koma stofnun þessari á fót, gæti atkvæðis síns og láti frv. ganga fram með brtt. á þskj. 258.