14.04.1921
Neðri deild: 43. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2126 í B-deild Alþingistíðinda. (2307)

100. mál, Ríkisveðbanki Íslands

Gunnar Sigurðsson:

Jeg skal lofa því að vera stuttorður, svo að þessir fáu þm., sem eftir eru, fari ekki út. Menn biðu hjer með óþreyju eftir málum málanna, peningamálunum, og er því ekki nema von, að menn þreytist að ræða hjer um friðun lunda og önnur álíka stórmál. Mál það, er hjer ræðir um, er í rauninni stórmál, sem hefði átt að vera framkvæmt fyrir löngu.

Fyrir landbúnaðinn eru víxillán afar óhentug lán, eins og allir vita, og þó sumir hafi grætt á þeim, má þó ávalt búast við, að svo stutt lán verði að tjóni, enda eru dæmi til þess. Og þegar svo langt er komið í kaupstöðunum líka, að bankarnir lána ekki út á 1. veðrjett í húsum nema víxillán, þá getur ekki hjá því farið, að hrun verði á húseignum, enda er það þegar farið að koma á daginn. En það ætti að vera öllum vitanlegt, hve mikið er undir því komið, hvernig farið er með fasteignirnar í landinu. Og jeg er viss um það, að fjárhagsástand okkar hefði verið annað nú, og lán bankanna tryggari, ef lánunum hefði verið skynsamlega jafnað niður á góðar jarðir og tryggar fasteignir í landinu.

Þingið sá nú, þótt seint væri, að svo búið mátti ekki standa, og það sá það um síðir, að brýn þörf var á fasteignabanka hjer á landi. Efnilegur maður var sendur utan, til þess að kynna sjer fyrirkomulag slíkra stofnana erlendis, og hefir hann samið það frv., sem hjer liggur fyrir. Væri því nokkuð hastarlegt, ef enn ætti að draga málið á langinn, eyðileggja undirbúninginn og draga stofnunina úr hömlum. Og mjer þykir sárt að sjá háttv. þm. Ísaf. (J. A. J.) í þeim flokki, er það vilja. Aðalástæða hans er hræðslan við það, að ræktunarsjóðurinn renni inn í þessa stofnun. Flestir munu nú vita það, að ræktunarsjóðurinn er til orðinn fyrir sölu þjóðjarðanna. Hann er að vísu 1 miljón á pappírnum, en fjeð er ekki líkt því alt innborgað, og það eru því afarfáir, sem geta fengið lán úr honum. Hann segir, að vextirnir sjeu þar afarlágir. Og það er satt. Jeg tel það samt ekki heppilegt að hafa vexti af lánum aðeins 4%, þegar vextir alment eru 8%. Það er að minsta kosti óeðlilegt. Sanngjarnt væri, að vextirnir væru 6–61/2%. Og þá vexti mun hinn fyrirhugaði banki taka.

Önnur ástæða háttv. þm. Ísaf. (J. A. J.) er sú, að illa muni ganga að selja veðbrjefin. Jeg viðurkenni það, að ekki sje gott að selja brjefin nú. En ef hægt væri að fá röskan mann til þess að kenna mönnum að kaupa brjefin, þá ættu þau að geta selst. Þetta eru tryggustu pappírarnir hjer á landi, og alls ekki ólíklegt, að fyrir þau fengist markaður erlendis.

Jeg hefi ávalt haft mikinn áhuga fyrir stofnun fasteignabanka, frá því jeg fyrst tók að hugsa um landsmál, og þar sem jeg hefi um alllangt skeið haft afskifti af sölu fasteigna og lántöku út á þær, þá hefi jeg manna best sjeð, hvílík geysiþörf var á slíkri stofnun hjer á landi. En þó er jeg ekki ánægður með eitt atriði í frv. Jeg hefði helst kosið, að stofnunin væri algerlega sjálfstæð. Og mjer er illa við, að bankastjórar Landsbankans verði bankastjórar við bankann. Jeg vona, að veðbankinn losni við afskifti þeirra innan skamms, ef úr þeirri ráðstöfun verður, og verði algerlega sjálfstæður.

Þá kem jeg næst að brtt. háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.). Jeg vil þó taka það fram, að mjer er ekki vel 1jóst, hvað fyrir þessum háttv. þm. vakir. Hann þykist vera málinu hlyntur. Má vera, að tilgangur hans sje góður, en aðalbrtt. hans fer í öfuga átt við tilganginn. En honum ætti þó að vera það ljóst, að það er alveg óhugsandi að hafa tvær slíkar lánsstofnanir í landinu, aðra fyrir sveitirnar og hina fyrir kaupstaðina. Er það og álit allra fróðra manna í þeim sökum, og þá sjerstaklega hjer á landi.

Danir hafa og fylgt þeirri reglu að lána jafnt út á hús og jarðir.

Jeg viðurkenni þá hugsun háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.), að leggja mest upp úr lánum til landbúnaðarins, og þá helst til jarðabóta. En það gerir frv. líka. Jeg viðurkenni, að nú er mjög ilt að fá lán til jarðabóta, t. d. vatnsveitna. Jeg hefi sjálfur reynt að fá lán til slíkrar virkjunar, en það fekst ekki. Er slíkum vandkvæðum vill einmitt 15. gr. frumvarpsins bæta. Og vil jeg leyfa mjer að lesa upp fyrstu málsgrein hennar, með leyfi hæstv. forseta.

„Ef lán það, sem sótt er um, er að öllu eða nokkru leyti ætlað til jarðabóta eða annara endurbóta á fasteignum, er hafa í för með sjer varanlega verðhækkun eignarinnar, má við virðingarverð meta sjerstaklega þá verðhækkun, og miða lánsupphæðina við virðingarverð eignarinnar, að meðtaldri verðhækkuninni“.

Þetta skilst mjer að sje næg trygging í höndum bankastjóra, til þess að tillit verði tekið til þessa.

Háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) lagði mikið upp úr því, að veðbrjefin væru ekki eins trygg, ef blandað væri saman brjefum, trygðum með fasteignum í sveit og fasteignum í kaupstað. Þetta skil jeg ekki. Peningamagnið er venjulega meira í kaupstöðunum, og ætti það því að vera styrkur fyrir sveitirnar. Jeg held því, að slík áhættudreifing hljóti að vera ekki ótryggari, heldur tryggari.

Jeg vil taka það hjer fram um leið, að jeg er samþykkur brtt. háttv. 1. þm. Árn. (E. E.) að efni til, en jeg legg ekki eins mikið upp úr forminu eins og hæstv. fjrh. (M. G.).

Háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) áleit, að brjef þau, sem trygð væru í jarðræktardeildinni, mundu seljast betur en önnur veðbrjef bankans, af því að þau lán væru veitt til styttri tíma. Jeg held, að þetta sje hreint og beint sagt út í bláinn, því ef nokkuð er, þá ættu þau brjef að seljast ver, vegna þess meðal annars, að jarðræktardeildin yrði miklu minni stofnun en sjálfur veðbankinn. Jeg neyðist því til a? taka það svo, að þessi háttv. þingmaður vilji annaðhvort fella frv. eða fresta málinu, og mun hann þó það hvorugt geri í neins þágu, og ekki heldur kjördæmis síns.

Þingmaðurinn sagði, að það væri ekki tekið föstum tökum á jarðabótalánunum í frv. En slíkt er einmitt gert í 15. gr., eins og jeg tók fram áðan. Og ef svo færi, að einhver vildi enn fá sjer viðbótarlán, þá er honum leiðin að bönkunum jafnopin eftir að veðbankinn er kominn á eins og áður.

Þið hefir áður verið á það bent hjer í umræðunum, að reikningsfærsla bankans yrði mjög flókin samkvæmt till. háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.), og er það rjett.

Að lokum vil jeg þó geta þess, að jeg felst fyllilega á eina brtt. háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.). Það er brtt. við 22. gr. frv., um, að ekki skuli greiða meira í varasjóð bankans en l% af lánum.