16.04.1921
Neðri deild: 45. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2134 í B-deild Alþingistíðinda. (2312)
100. mál, Ríkisveðbanki Íslands
Pjetur Þórðarson:
Hæstv. atvrh. (P. J.) tók það skýrt fram í ræðu sinni, að hann hefði ekki haft tíma til að athuga þetta mál nægilega. Kemur þetta vel heim við mína skoðun. Ræða hæstv. atvrh. (P. J.) bar þess líka ljósan vott, því að enda þótt góðar athugasemdir kæmu frá honum, þá var ræðan samt nokkuð á reiki og sundurlaus. Sannaði hann með henni það, sem hann hjelt fram við 1. umr. máls þessa, að málið væri ekki svo enn undirbúið, að ekki þyrfti að koma sjer saman um ýms atriði og undirbúa málið betur.
Sjerstaklega vil jeg leggja áherslu á það, að hjer er horfið frá grundvellinum undir þál. 1919. Væri raunar eigi svo mikið um þetta að segja, ef eigi væri svo ráðstafað ræktunarsjóðnum, sem hjer er gert. Sannfærist jeg um það æ betur og betur, að með ráðstöfun þeirri verði, svo að segja, hinni einu stoð landbúnaðarins í þessu efni kipt undan honum og skotið undir kaupstaðina, og þá fyrst og fremst Reykjavík. Satt er það, að gildar ástæður mæla með því, að láta ekki þau tækifæri, sem gefast kunna landbúnaðinum til viðreisnar, ónotuð, en aðalatriðið í þessu máli er það, hvaða trú menn hafa á því, að peningar fáist til þessarar lánsstofnunar. Skyldi jeg vera fús á að samþykkja frv. þetta, ef jeg teldi nokkur líkindi á, að nægilegt fje fengist í náinni framtíð til þess að fullnægja almennum veðlánum. En eina lindin, sem úr hefir verið ausið, veðdeild Landsbankans, er nú þornuð. En fylgjendur þessa frv. hafa eigi enn vakið trúna á það, að banki þessi verði annað en pappírsgagn fyrir landbúnaðinn, að minsta kosti lengi fram eftir; væri því illa farið með ræktunarsjóðinn, ef frv. næði fram að ganga óbreytt.
Brtt. á þskj. 258 tel jeg mjög lítils virði. Sýnist mjer barnalegt að halda, að ákvæði um slíkan forgöngurjett landbúnaðinum til handa kæmi að nokkru haldi, og reglugerðarákvæði í þessa átt mundi ekkert stoða, því að utan hjá því mætti sífelt komast. Virtist mjer hæstv. atvrh. (P. J.) vera mjer sammála hjer um.
Eigi fæ jeg heldur sjeð, að brtt. á þskj. 320 bæti hjer um í nokkru verulegu, og erum við hæstv. atvrh. (P. J.) þar ósammála. Er þar aðeins vikið við forsendunum, líklega eftir till. hæstv. fjrh. (M. G.), en bókstafurinn er hinn sami í báðum tilfellunum, og meiningin sem sje sú að reyna til þess að fá einhverju um þokað frá frv., landbúnaðinum eða lánsþörf hans í hag. En þó sýnist mjer, að taki langt út yfir allan annan rökstuðning fylgjenda frv., þegar þeir telja trygginguna fólgna í manninum, sem veita á bankanum forstöðu. Því þó að maðurinn sje ungur og hraustur og hversu mikill landbúnaðarvinur, sem hann kann að vera, þá er tryggingin samt lítil, svo framarlega sem bankanum er lengra líf ætlað en manninum.
Mig minnir, að háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) gæti þess, þegar hann mælti með brtt. sínum, að hann ætti að etja við mótstöðu úr öllum áttum. Jeg skal nú taka það fram, að jeg er ákveðinn í því að greiða brtt. hans flestum eða öllum atkv., því verði frv. samþykt, þá er að þeim hin mesta bót. Hitt þykir mjer aftur á móti sennilegt, að nauðsyn beri til að samræma þær við frv. sjálft betur en enn hefir verið kostur. Er jeg sannfærður um, að ef fleiri atriði væru tekin til athugunar, mundu breytingar verða gerðar á þeim; skal jeg þar til nefna ýmislegt viðvíkjandi stjórn bankans, fyrirkomulagi hans og veðdeildarinnar, sem til hans á að hverfa, o. fl.
Því hefir verið haldið fram, að brtt. háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) mundu auka störf við bókfærslu og gera hana erfiðari. Má vel vera, að þetta sje rjett, en jeg tel þar fyrir sjálfsagt, að leggjast ekki undir höfuð að koma deildinni á, því að hún er bráðnauðsynleg.
Annars er í frv. sjálfu, 2. gr., gert ráð fyrir að taka að sjer mjög umfangsmikla sjerdeild, er hafi sín sjerstöku lög og reglugerðir og reikningshald; er því eigi stofnað með till. háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) til neinna þeirra erfiðleika, sem eigi voru áður fyrir hendi.
Það gæti annars verið full ástæða til þess að athuga, hvernig það samrýmdist við þessa stofnun, að taka veðdeild Landsbankans, með lögum hennar og reglugerðum frá 10. nóv. 1913 algerlega óbreyttum, og sameina hana stofnuninni.
Meðal annars hefir 4. flokkur veðdeildarinnar heimild til að gefa út bankavaxtabrjef fyrir 5 miljónir króna. Þessi heimild hefir enn ekki verið notuð nema að hálfu leyti, sökum þess að örðugt hefir reynst að selja bankavaxtabrjefin. Ef veðdeildin verður nú tekin inn í þessa stofnun eins og hún leggur sig, og óbreytt, þá vefst fyrir mjer, hvernig á að nota þessa fyrnefndu heimild hennar, hvort gefa eigi út öll þau bankavaxtabrjef, sem henni tilheyra, og nota svo heimildina áfram, eða hvort stöðva eigi framkvæmdir veðdeildarinnar, að svo miklu leyti, sem þær eru eigi þegar stöðvaðar, og þá, ef til vill, að breyta eitthvað þeim reglugerðum, sem hún hefir starfað eftir.
Jeg býst nú ekki við að geta rakið hjer neitt til hlítar þau athugaverðu atriði, sem athugunar þyrftu í máli þessu, og því tek jeg þann kostinn að leggja það til, að málið verði ekki samþykt að þessu sinni. Hins vegar er jeg stofnuninni fylgjandi, vil einungis, að þetta mál verði betur íhugað. Læt jeg þetta nægja til að gera grein atkvæðis míns um brtt. á þskj. 290, en jafnvel þó þær verði samþyktar, mun jeg samt sem áður ekki treystast til að greiða frv. atkvæði mitt.