19.04.1921
Neðri deild: 47. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2171 í B-deild Alþingistíðinda. (2325)

100. mál, Ríkisveðbanki Íslands

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg neita algerlega þeim getsökum háttv. 1. þm. Árn. (E. E.) í minn garð, að brtt. mínar sjeu sprottnar af óheilindum við málið. Jeg hefi alveg eins mikinn rjett til að segja, að brtt. sú, sem hann bar fram við 2. umr. hafi verið sprottin af óheilindum við málið. En mjer dettur slíkt ekki í hug, því að það er ekki vandi minn að gera mönnum upp óhreinar hvatir að orsakalausu, en háttv. þm. (E. E.) gerir þetta altaf, og fer jeg nú að halda, að á honum sannist málshátturinn: „Margur heldur mig sig“.

Það er ástæðulaust að þrátta um það, hvort það ríði bankastofnuninni að fullu, þótt hún greiði 4% vöxtu af tryggingarfjenu. Jeg er sjálfur sannfærður um, að það sje óhugsandi. Því að ef svo væri, hvernig færu þá yfirleitt bankar og sparisjóðir að lifa?

Jeg kæri mig ekki um að festa fje það, sem kann að koma inn fyrir seldar þjóð- og kirkjujarðir. Háttv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) sagði, að þetta væri líkt minni fjármálastefnu. Það getur verið, en jeg skammast mín ekkert fyrir þá stefnu, að vilja ekki binda fast það fje í dag, sem jeg þarf að nota á morgun.

Háttv. 1. þm. Árn. (E. E.) heggur nokkuð nærri yfirboðurum sínum, bankastjórum Landsbankans, að segja, að þeir vilji ekkert gera, nema þeir fái borgun fyrir. En þótt svo væri, þyrfti ekki að auka neitt við laun þeirra, þó veðbankinn komi í stað veðdeildarinnar, því starf þeirra eykst ekki við það. Munurinn er aðeins sá, að í stað þess að vinna óákveðinn tíma fyrir veðdeildina, þurfa þeir að hafa ákveðinn tíma fyrir veðbankann.