07.03.1921
Efri deild: 16. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í B-deild Alþingistíðinda. (233)
32. mál, friðun rjúpna
Jóhannes Jóhannesson:
Það hefði, ef til vill, verið rjettara að taka það fram í fyrirsögn frv., að í því væri að ræða um breytingu á fuglafriðunarlögunum, og að þar með væri úr gildi numið hið fyrra ákvæði um friðunartíma rjúpna. Því að, eins og frsm. gat um, felst í þessu frv. breyting á þeim lögum, og væri rjettara að geta þess í fyrirsögninni. Jeg segi þetta nefndinni til athugunar, áður en frv. kemur til 3. umr.