14.05.1921
Efri deild: 70. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2190 í B-deild Alþingistíðinda. (2342)

100. mál, Ríkisveðbanki Íslands

Frsm. meiri hl. (Björn Kristjánsson):

Meiri hl. peningamálanefndarinnar hefir ekki treyst sjer til að fallast á frv. þetta skilyrðislaust og óbreytt.

Meiri hl. getur ekki felt sig við að binda þessa 3 sjóði, sem frv. nefnir, ræktunarsjóð, viðlagasjóð og kirkjujarðasjóð, sem allir eru nauðsynlegir, hver á sínum stað. Þessar 3 miljónir kr. eru ekki afhentar bankanum sem rekstrarfje, enda getur það ekki verið, þar sem þeir standa mestmegnis í lánum og verðbrjefum. Upphæðin getur því ekki verið til annars ætluð en sem tryggingarfje, að minsta kosti um mörg ár. Þetta virðist með öllu óþörf eyðsla.

Slíkur banki sem þessi þarf tvennskonar fje, tryggingarfje og rekstrarfje.

Sem tryggingarfje væri nægt að afhenda bankanum í byrjun svo sem 400 þús. kr., svo hann geti gefið út 1. flokkinn, sem mundi vera hæfilega stór svo sem 3 miljónir kr., en trygging fyrir 3 miljónum kr. á að vera eftir frv. 1/8 af brjefum þeim, sem eru í umferð, eða 375 þús. kr.

Sem tryggingarfje væri því nægt að afhenda bankanum í byrjun sem svarar þessari upphæð.

Hið eina af þessum 3 miljónum króna, sem virðist vera ætlað sem veltufje í byrjun, er vaxtamunurinn á 10 árum á milli 2% og vaxta þeirra, sem sjóðirnir njóta, og mun það ekki vera öllu meira en rekstrarkostnaðurinn, eða jafnvel ekki sem honum nemur.

Það virðist því á misskilningi bygt að afhenda bankanum 3 miljónir króna sem tryggingarfje, og að binda þar með alveg að óþörfu þessa stóru upphæð, sem samsvarar tryggingu fyrir 24 miljónum króna. En bankinn þarf veltufje, greitt í reiðupeningum, ef hann á að verða sjálfstæður banki. eins og frv. ætlast til.

Og hvers vegna þarf hann veltufje?

Af því hann ætlar að verða sjálfstæður banki, og ætlar að geta gert eitthvert gagn, annað en að skapa stöður fyrir bankastjórana.

Og nú munu menn spyrja: Af hverju var veðdeildinni í upphafi aðeins afhent tryggingarfje? Svarið er: Af því veðdeildin stóð í sambandi við allstóran banka, í samanburði við hana, stóð þar sem fósturbarn bankans, sem lagði henni alt veltufjeð til frá 1900–1919.

Landsbankinn lánaði úr veðdeildinni, og notaði bankans fje, innlánsfje bankans, til að kaupa fyrir brjefin af lántakendum.

Þegar tregt gekk að selja brjefin aftur, eða vextirnir voru um tíma afarháir, þá mun hafa komið fyrir, að bankinn hafi legið með um 2 miljónir króna í bankavaxtabrjefum veðdeildarinnar. Þetta verður Ríkisveðbankinn að geta gert, ef hann ætlar að vera sjálfstæður, eins og frv. ætlast til. Þess vegna þarf bankinn útlagt. veltufje, ef hann á að stofnast. Skuldabrjef þessara sjóða nægja honum ekki.

Nú hefir veðdeildin aflað sjer mikils tryggingarfjár, auk þess, sem henni hefir verið lagt það til frá landssjóði og Landsbankanum.

Hvers vegna á þá að leggja hana niður? Og hvers vegna vill landsbankastjórnin ekki leggja veðdeildinni til veltufje með sömu kjörum og áður?

Og hvers vegna snýr þingið sjer ekki til Landsbankans með þá ósk, að bankinn fari jafn vel með þetta fósturbarn sitt og áður?

Engin von er um, að nýr óþektur fasteignabanki, sem á að gera alt það sama og veðdeildin gerir, sje færari um að selja bankavaxtabrjef sín en veðdeildin, ef landsbankastjórnin gerir skyldu sína í þessu efni. Og hún getur, ef hún vill, haft umboðsmenn úti um alt, hjer og erlendis, til að selja brjefin eins og Ríkisveðbankinn.

Vilji menn njóta allra ákvæða í frv., þá má koma þeim að í næsta veðdeildarflokki.

Meiri hl. álítur þetta mál ekki nógu vel undirbúið, og hvergi á fremur við orðtakið: „það verður vel að vanda, sem lengi á að standa“ en einmitt þegar um þesskonar löggjöf er að ræða.

Síðar er svo örðugt að breyta; það gera skyldurnar við kaupendur bankavaxtabrjefanna.

Eigi að stofna lánsstofnun fyrir landbúnaðinn, eins og þál. frá 1919 ætlast til, þá virðist vera opnasti vegurinn, að landbúnaðarhjeruðin stofni 1 eða fleiri veðlánsstofnanir fyrir landið á þann hátt, sem bent er á í nál. meiri hl. á þskj. 580, og þá með dálitlum styrk úr ríkissjóði til varasjóðsstofnunar. Og slíkar stofnanir geta starfað óáreittar af þingi og stjórn, sem mikils er um vert. Ef máli þessu er vísað til stjórnarinnar með rökstuddri dagskrá, þá mun gefast tækifæri til að athuga málið nánar, og það leggur meiri hl. til. Frv. er áreiðanlega ekki þroskað til að verða að lögum.

En svo eru ýmsar spurningar, sem jeg leyfi mjer að leggja fyrir þá, sem meira vita en jeg:

Vill Landsbankinn sleppa veðdeildinni? Um það virðist enginn vita.

Varasjóður veðdeildarinnar er, að mínu áliti eign Landsbankans að hálfu, og á þá ríkissjóður hinn helminginn. 31. des. 1919 nam hann 377259 kr.

Vill nú Landsbankinn gefa sinn hluta? Landsbankinn á hálft tryggingarfje veðdeildarinnar. Helmingur þess mun hafa numið á sama tíma 585700 kr. Vill Landsbankinn skilyrðislaust afhenda öðrum banka og annari stjórn þetta tryggingarfje? Eða mun hann ekki öllu heldur heimta það afhent sjer frá hinni nýju stofnun, þannig, að hún verði að setja annað fje í staðinn?

Og loksins: Er það löglegt og áhættulaust að afhenda veðdeildina annari lánsstofnun?

Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um alt þetta hjá þeim, sem vilja láta frv. nú ganga fram óbreytt. Með þessum formála leggur meiri hl. til, að frv. sje vísað til stjórnarinnar með rökstuddri dagskrá. Og kem jeg þá að brtt., sem gerðar eru til vara.

Nefndin hefir ekki haft tíma til að yfirvega frv. eins ítarlega og skyldi, því það þarf bæði mikinn tíma og fagþekkingu til að gagnrýna slíkt mál og þetta til hlítar. Þó hefir hún gert við það nokkrar brtt., og skal jeg mi gera nokkra grein fyrir þeim í fám orðum.

Jeg skal þá fyrst minnast á 2. gr., þótt engin brtt. sje við hana. Vildi jeg aðeins biðja háttv. deild að athuga það, hvort afhending veðdeildar Landsbankans, eins og þar er gert ráð fyrir, muni vera tiltækileg.

Við höfum ekki heldur gert neina brtt. við 3. gr., en jeg vil samt benda á, að rjettara muni að kalla fje það, sem hjer er um að ræða, veltu- og tryggingarfje heldur en stofnfje, því bankinn kemst ekki hjá að nota hvorttveggja.

Á 4. gr. ætti þá líka að verða þessi breyting. Annars fer brtt. við hana fram á, að feld verði niður ákvæðin um, að fjeð verði greitt úr þessum þrem sjóðum, heldur greiði ríkissjóður fje þetta, þá er ríkisstjórnin sjer sjer það fært. Er aðalorsökin til þess sú, að meiri hl. nefndarinnar álítur ekki tiltækilegt að farga svo sjóðum þessum, og verða svo án þeirrar hjálpar, sem þeir veita.

Næst er 2. brtt., sem á við 7. gr. Aðalbreytingin, sem þar er um að ræða, viðkemur röðinni á tryggingarfje því, er taka skal til, er á tryggingum þarf að halda. Meiri hl. nefndarinnar þykir sjálfsagt, að fyrst sje þá tekið til varasjóðs, en ekki til skuldabrjefa lántakenda til stofnunarinnar. því venjulega er gert ráð fyrir því, að ekki sje tekið til þess ráðs að selja þau, fyr en stofnunin er að gjaldþrotum komin.

Næsta brtt. er við 12 gr. frv. í 1. málsgr. er þar tekið fram, að lána megi gegn veði í fasteignum alt að 2/5 hlutum af virðingarverði fasteignarinnar. Eins og bent er á í nál., hefir reynslan af virðingum fasteigna orðið sú, að meirihl. nefndarinnar telur alls ekki ráðlegt að lána út á meira en hluta af virðingarverði. Það er auðsætt, að höfundur frv. þessa hefir hjer orðið fyrir áhrifum af reglugerðum „lánsfjelaganna“ dönsku og þýsku, því þau lána út á fasteignir alt að 3/5 hluta virðingarverðs. En þar stendur öðruvísi á en hjer. Þar er um „solidariska“ ábyrgð að ræða, og allar jarðir sem eitt veð. — Það bólar hjer á því, eins og sumsstaðar annarsstaðar, að höfundur frv. hefir ekki þá reynslu í þessum efnum, sem æskilegt væri.

Þá hefir meiri hluti nefndarinnar lagt það til, að síðasta málsgrein 12. greinar falli niður. Hún er í sama anda og 1. málsgrein, að gera sem rýmst um lánin. Hún kveður á um, að í reglugerð megi setja ákvæði, sem heimili að lána út á annan veðrjett, er sjerstaklega stendur á, þó svo, að öll skuldin, sem á fasteigninni hvílir, fari ekki fram úr 3/5 af virðingarverði. Þetta ákvæði telur meiri hluti nefndarinnar mjög varhugavert. — Ef slíkt ákvæði sæist í lögunum, að lána mætti út á annan veðrjett, þá myndi það eflaust spilla mjög fyrir sölu bankavaxtabrjefanna, að minsta kosti erlendis. Að taka lánsfjelögin dönsku og þýsku hjer til fyrirmyndar á alls ekki við. Þar er, eins og jeg hefi tekið fram áður, alt öðru máli að gegna og minna í hættu á alla kanta, þar sem um samábyrgð á öllum eignum er að ræða.

Ákvæðið um áhættugjaldið fjelli þá líka að sjálfsögðu niður, enda væri það áreiðanlega ekki sem best fallið til að auka traust bankans.

4. brtt. á við 13. gr. og hljóðar um það, að 2. málsgrein hennar falli niður. Sú málsgrein er um það, að í vissum tilfellum þurfi sjerstök virðing vegna lántökunnar ekki að fara fram. Nú er þessi almenna virðing eða mat á fasteignum, sem nota á, mjög svo óábyggilegt, og verður því óábyggilegra, sem lengra líður frá því, er virðing er gerð, og auk þess verður að ætlast til, að slíkar lánsstofnanir, sem þessi, hafi sjálfar öll venjuleg skjöl og skilríki á hendi, sem snerta lánin. Telur meiri hl. nefndarinnar af þessum sökum ekki ráðlegt að bregða frá þeirri reglu, að sjálfstæð virðing fari fram í hvert sinn, sem lánað er út á einhverja fasteign.

Brtt. við 14. og 15. gr. eru þær sömu og brtt. við 1. málsgrein 12. greinar, og þarf jeg því ekki að víkja frekar að þeim.

Þá kemur 7. brtt. við 18. gr. Þótt frv. þetta sje yfirleitt fremur myndarlega samið og ljóst, þá er þessi grein mjög óljóst orðuð. Í þessari grein er gert ráð fyrir, að veðlánsfjelög geti orðið stofnsett, og Ríkisveðbankanum þá heimilað að kaupa skuldabrjef þessara fjelaga. Er hjer svo komist að orði, meðal annars: „getur þá bankinn keypt skuldabrjef slíkra fjelaga eða veitt þeim lán, gegn tryggingu í veðskuldabrjefum fjelagsmanna og öðrum eignum hvers fjelags, auk sameiginlegrar ábyrgðar lántakenda fjelagsins“.

En í upphafi greinarinnar stendur: „Nú verða stofnuð veðlánsfjelög — með sameiginlegri ábyrgð fjelagsmanna“. Það er augljóst, að hjer er annaðhvort um tvítekningu að ræða, eða það er í síðari staðnum átt við persónulega ábyrgð. — Að minsta kosti mætti skilja það svo. Meiri hluti nefndarinnar hefir því lagt til, að þau orð falli burtu.

Síðari breytingin á 18. grein eru aðeins tvö orð, sem er bætt inn til skýringar.

8. brtt. er einnig aðeins til skýringar.

Þá er næst 9. brtt. við 25. gr. Þar er gert ráð fyrir, að gjaldið til varasjóðs sje frá 1/4% upp í 3/4% af eftirstöðvum lánsins. En reynslan hefir sýnt, að gjaldið má ekki vera svo lágt, ef bankinn á að geta borið þann kostnað, sem á hann er lagður. Ef síðari talan eða hámarkið þykir of hátt, sem brtt. tekur til, þá er stjórnarráðinu í lófa lagið að taka lágmarkið, — en það mun þó vart of hátt.

Þá er í þessari málsgrein tekið fram, að stofnunin geti lagt mismunandi gjald á lántakendur. Það hygg jeg að varla verði heppilegt, og mun rjettast að leggja jafnt á alla og láta alla njóta sama rjettar. — Leggur meiri hluti nefndarinnar því til að fella þetta ákvæði burt.

3. málsgrein 28. greinar vill meiri hl. fella niður. Þar stendur svo, að aukaafborgunum og endurborgunum lána megi verja til nýrra útlána. Þeim, sem kaupa verðbrjefin, mun finnast þau standa nógu lengi, þó öllu, sem innborgast, sje varið til að innleysa þau. Þess vegna vill meiri hl. fella þetta ákvæði í 28. gr. niður. Enda nema aukaborganir, sem greiddar eru í peningum, svo lítilli upphæð, að enga praktiska þýðingu hefir að lána það út aftur, en aftur getur það haft ill áhrif á útlendinga, sem kaupa eiga hlutabrjefin, sjái þeir að aukaborgunum á ekki líka að verja til að innleysa brjefin.

3. málsgrein 29. greinar vill meiri hl. einnig fella niður. Þar er svo sagt, að af fje varasjóðs megi veita lántakendum aukalán í peningum, alt að þeirri upphæð, sem afföll af bankavaxtabrjefum þeim nema, er þeir fá lán sín greidd með.

Mjög er fjarlægt meiri hlutanum að álíta, að rjett sje að leyfa að lána úr varasjóði. Vanalega er reglan sú, að snerta hann ekki til annars en að borga með honum tap, sem bankinn verður fyrir, ef nauðsynlega þarf. Engin ástæða er til að ákveða, að úr honum megi taka fje til að lána út á sama hátt og í þessari málsgrein. Slík smálán eiga menn að geta fengið í hinum bönkunum.

Þá er 10. brtt. b við 29. gr. 4. málsgr. í þessari málsgrein er gert ráð fyrir, að varasjóður skuli ávaxtaður í bankavaxtabrjefum bankans sjálfs, eða á annan tryggilegan hátt. Þetta er nú gott og blessað; en venjan er nú sú, að ávaxta ekki varasjóð eingöngu í brjefum stofnunarinnar sjálfrar, heldur einnig í brjefum annara stofnana. Þar sem þessi er nú venjan, að ávaxta varasjóð ekki eingöngu í brjefum stofnunarinnar sjálfrar, þá hefir meiri hlutinn lagt til, að láta „ávaxtað í innlendum ríkisskuldabrjefum“ standa á undan: „bankavaxtabrjefum bankans sjálfs“, til merkis um það, að aðalreglan eigi einmitt að vera sú, að ávaxta þau í innlendum ríkisskuldabrjefum.

30. gr. vill meiri hlutinn láta fella burtu. Leiðir það beint af því, að meiri hl. vill fella niður ákvæðið um, að sjóðirnir renni inn í bankann, því 30. gr. er öll um þessa sjóði. Þarf ekki að skýra þessa brtt. neitt frekar.

13. brtt. er við 38. gr. í henni er lagt til, að bankanum stjórni 2 bankastjórar, en ekki 3. eins og í frv. Það er samskonar fyrirkomulag eins og var í Landsbankanum áður. (letur meiri hl. ekki sjeð, að bankinn muni verða svo stór fyrst, að 2 bankastjórar megi ekki. Og til að halda kostnaðinum niðri, vill meiri hl. nefndarinnar láta annan endurskoðandann, þann, sem kosinn er af stjórninni, sem á að vera kritiskur endurskoðari, skera úr, ef hinir 2 bankastjórar ekki geta komið sjer saman, eins og gæslustjórarnir gerðu áður við Landsbankann.

Brtt. 13 b. er orðabreyting, sem leiðir af 13 a.

14.brtt. a. er um, að 1. málsgr. 39. gr. orðist svo: „Bankastjórarnir ráða alla starfsmenn bankans og víkja þeim frá“. Hjer er gert ráð fyrir, að bankastjórarnir sjálfir ráði starfsmenn sína.

Oft hefir verið talað um nauðsyn þess hjer í þinginu, að bankastjórnirnar sjálfar hefðu vald til að ráða þjóna sína. Margoft hefir reynslan sýnt, að annað er. ekki tiltækilegt. Reynslan hefir sýnt, að ekki er hægt að hafa stjórn á banka, nema bankastjórarnir ráði sjálfir starfsfólkið og ráði hvenær það fer frá starfanum aftur. Við veðdeild Landsbankans hefir sú aðferðin verið höfð. Bankastjórarnir hafa sjálfir ráðið bókara við hana, en ekki stjórnin, og hefir það reynst mjög vel. Full trygging ætti það að vera, að stjórnarráðið velur bankastjórana sjálfa, svo óþarfi er frá því sjónarmiði, að stjórnin skipi einnig starfsmennina.

14. brtt. b. leiðir beint af breytingunum á undan.

15. brtt. leggur til, að 1. málsgr. 40. gr. orðist svo: „Báðir bankastjórarnir skulu undirskrifa, er gefa skal út eða framselja bankavaxtabrjef, önnur verðbrjef eða aðrar skuldbindingar“.

Nauðsynlegt er að hafa ákvæði um, að báðir bankastjórarnir verði að undirskrifa, þótt slysast hafi inn í lög Landsbankans, að undirskrift eins nægi. Ákvæðið í frv. um, að bankastjórarnir geti falið þjóni sínum að skrifa undir í sinn stað, með einum bankastjóra, er óhæft. Því engin trygging felst í því, þótt þjónn skrifi undir. Þjónninn er nærri því neyddur til að skrifa undir með yfirboðara sínum það, sem hann óskar. Auk þess vita þjónarnir ekkert, hvað um er að vera. Nær hefði legið, að bókarinn eða gjaldkerinn í Landsbankanum hefði fengið rjett til að undirskrifa, þar sem þeir eru skipaðir af stjórninni.

En til þess að það geti litið sæmilega út í augum útlendinga, sem kaupa eiga brjefin, verður að ákveða, að gildi hafi aðeins undirskrift tveggja bankastjóra, eða eins bankastjóra og annars endurskoðarans.

Síðari málsgrein 40. gr. fellur burt sökum þess, að samkvæmt brtt. kemur hún inn í 38. gr.

41. gr. vill meiri hl. nefndarinnar gerbreyta. í brtt. hans við þá grein er gert ráð fyrir, að bankastjórarnir skuli hafa fastákveðin árslaun. Þar sem hjer er um opinbera starfsmenn að ræða, getur ekki annað átt við. Sjerstaklega er meiri hl. á móti því ákvæði frv., að bankastjórarnir fái sjerstaka þóknun fyrir að koma út brjefuuum, því það er þeirra skyldustarf að koma þeim út.

b-liður 15. brtt. leiðir af því, að við viljum hafa tvo bankastjóra, báða jafn valdamikla.

17. brtt. er við 42. gr. Viljum við aðeins bæta einuorði inn í greinina, orðinu stjórn, svo þar standi, að endurskoðunarmennirnir eigi að rannsaka stjórn og rekstur, til þess greinilega komi fram, að endurskoðunin eigi að vera „kritisk“.

Loks leggur nefndin til, að einni grein sje bætt við, þar sem tekið er fram, að öll lagaákvæði, er komi í bága við þessi lög, sjeu numin úr gildi. Þetta ákvæði er nauðsynlegt sökum þess, að lög þessi höggva mjög nærri eldri lögum og breyta þeim, t. d. veðdeildarlögunum; en venja er að taka fram í nýjum lögum, sem breyta eldri, að hin eldri sjeu úr gildi numin.

Þá hefi jeg gert grein fyrir öllum brtt.; en jeg vil taka fram einusinni enn, að þessar brtt. eru eingöngu til vara. Aðalatriðið fyrir okkur er, að fá málinu vísað til stjórnarinnar, til frekari athugunar og undirbúnings.

Því hefir verið haldið fram, að slíkt væri algerlega tilgangslaust, þar sem stjórnin væri með málinu og því fylgjandi að það næði fram að ganga nú á þessu þingi. En þar til er því að svara, að þegar athugað er, hversu flókið og umfangsmikið mál þetta er, þá er óhugsandi, að stjórnin hafi getað sett sig inn í málið, jafn önnum kafin og hún er. Og því er markleysa að segja nokkuð um það nú, hvort hún er með því eða móti.

Við 9. grein höfum við ekki borið fram neina breytingartillögu. Á eitt ákvæði í þeirri grein vil jeg þó minnast. Þar er svo ákveðið, að hver deild megi ekki standa lengur en 55 ár. En 55 ár er altof langur tími. Væri hann hafður svo hár, mundi það fæla útlendinga frá að kaupa brjefin. Reynslan er sú annarsstaðar, að menn fráfælast að kaupa brjef, sem ekki er hægt að fá innleyst fyr en eftir mannsaldur, og því stefnir alt að því þar að stytta tímann. Venja sú, er áður var, að selja brjefin t il 55 eða jafnvel 90 ára, má heita úr sögunni. Nú dugir ekki lengur að hafa tímann svo langan; við verðum að hafa hann styttri. eins og allir aðrir. Við þetta bætist svo það, að mín reynsla er sú, að landsmenn óska ekki eftir svo löngum lánum. Er þeim var sjálfum leyft að ákveða, til hve langs tíma þeir tækju lánið, tóku þeir það venjulega til 25 ára. Kom fyrir, að beðið var um 40 ára lán, en aldrei til lengri tíma. Og jeg verð að álíta, að þau fyrirtæki, sem eigi geta borgað hagkvæm lán á 25–30 árum, eigi ekki skilið að fálán.

Jeg hefi orðið alllangorður, en þetta mál er svo merkilegt, að ekki dugir að hroða því af; það verður að ræðast og athugast. Vona jeg að þær skýringar, sem jeg hefi gefið, sjeu sannar og rjettar, því annað en það, sem jeg veit satt og rjett. hefi jeg eigi viljað segja.