14.05.1921
Efri deild: 70. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2232 í B-deild Alþingistíðinda. (2349)

100. mál, Ríkisveðbanki Íslands

Sigurður Jónsson:

Ræður frsm. hafa verið mjög svo hógværar og bróðurlegar. Hefði jeg ekki beðið mjer hljóðs, hefði mjer ekki fundist út af þessu bregða hjá háttv. 4. landsk. þm. (G. G.). Hafði hann stóryrði, sem hjer væri verið að brjóta lög og rjett. Sagði hann, að með þessu frv. væri verið að kasta ræktunarsjóðnum í ljónagröf. Áhugamál væri þm. það eitt, að koma vissum manni að embætti með því að samþykkja þetta frv. Jeg er nú viss um, að allir þm., sem samþ. þetta frv., gera það af áhuga fyrir málinu sjálfu, og verði frv. felt, þá er traðkað bæði vilja þings og þjóðar. Ræktunarsjóðurinn nær skamt. Fyrir lán úr honum er lítið hægt að gera. Ríkisveðbanka verðum við að fá, og þess fyr sem bankinn er stofnaður, því fyr mun hann geta farið að starfa í svo stórum stíl, að um muni. Því hygg jeg misráðið að fresta málinu nú; það þarf að byrja á framkvæmd þess nauðsynjamáls strax, og nota árshlutann, sem eftir er, til undirbúnings stofnunar bankans.