12.03.1921
Neðri deild: 21. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í B-deild Alþingistíðinda. (238)
32. mál, friðun rjúpna
Forsætisráðherra (J.M.):
Þetta frv. var lagt fyrir háttv. Ed. og tók þar dálítilli breytingu. Hún var í því fólgin, að ársfriðunartíma rjúpunnar var breytt. Nú er hann 7. hvert ár, hluta úr vetri, sumar og fram á næsta vetur. En eftir þessu frv. er til þess ætlast, að hann sje heilan vetur í einu. Það mun gert með það fyrir augum, að vetrarhlutann á undan friðunartímanum keppist menn við að skjóta fuglinn, og taki síðan aftur til óspiltra málanna, þegar friðunartímanum ljettir af næsta vetur. Jeg vil ekki um það dæma, hver tíminn er heppilegri; á það má líta misjöfnum augum. En á eitt má benda í þessu sambandi, og það er, að friðunartíminn eftir þessu frv. er eitthvað styttri, en miklu munar það ekki.
Þetta mál þyrfti að athuga í nefnd, og þyrfti þá sjerstaklega að bera það saman við almenn friðunarlög, til þess að fullkomið samræmi verði þar á milli. Í háttv. Ed. mun það hafa farið til landbúnaðarnefndar, og er sjálfsagt, að svo verði einnig hjer.