21.03.1921
Neðri deild: 28. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í B-deild Alþingistíðinda. (241)
32. mál, friðun rjúpna
Frsm. (Hákon Kristófersson):
Af nefndarinnar hálfu hefi jeg ekki annað að taka fram í þessu máli en það, sem stendur í nál. á þskj. 159. Breytingin, sem nefndin fer fram á, er á því bygð, að nefndinni þótti friðunartíminn of stuttur. Jeg vona að háttv. deild samþ. frv. með þessari breytingu, og sje svo ekki ástæðu til að fara um það fleiri orðum.