06.05.1921
Efri deild: 63. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2328 í B-deild Alþingistíðinda. (2474)

117. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka hlutafjárauka o. fl.

Halldór Steinsson:

Jeg á hjer tvær brtt. á tveimur þskj. Aðra þeirra flyt jeg einn, en hina með háttv. 2. landsk. þm. (S. E.). Hvað þá brtt. snertir, sem jeg flyt einn, þá vildi jeg láta það koma skýrt fram, hvernig hagur bankans stæði, og að hlutabrjefin væru eigi keypt fyr en rannsókn hefði farið fram í því efni, svo það sje ekki hægt að segja, að þar sje köttur í sekknum. Jeg tek það fram, að jeg geri það ekki af tortrygni eða vantrausti á hag bankans, heldur til þess, að stjórnin geri skyldu sína og gæti hags ríkisins. Jeg skal einnig geta þess, að jeg tel það miklu skifta, hverja stjórnin fær til þess að rannsaka hag bankans, og væri eðlilegast, að stjórnin skipaði til þess þá 3 Íslendinga, sem ætlast er til í frv., að meti verð hlutanna. Hins vegar tel jeg óeðlilegt, að þeir 2 menn, er Íslandsbanki kveður til matsins, taki þátt í rannsókn á hag bankans.

Háttv. 2. þm. S.-M. (S. H. K.) sagði, að það væri enginn efnismunur á brtt. og frv.greininni, en jeg verð að segja, að það er talsvert mikill munur.

Í frv. kemur ekki annað fram en einungis að meta verð hlutabrjefanna; þar er ekki talað um neina frekari rannsókn á hag bankans.

Hvað snertir brtt. þær, sem jeg flyt með hv. 2. landsk. þm. (S. E.), þá þarf jeg fátt um þær að segja, því hv. 2. landsk. þm. (S. E.) hefir talað með þeim, en jeg kann þó betur við að minnast á það örfáum orðum, hvað fyrir mjer vakti. Eins og sjest á frv. er það aðalkjarni málsins, að ríkið kaupi hlutabrjef í bankanum, og nái um leið yfirráðum yfir honum.

Sjálfur seðlaútgáfurjetturinn er aukaatriði, því ef þetta skipulag kemst á, þá verður seðlaútgáfu bankans hagað eftir því, sem best hagar ríkinu, og þá um leið bankanum, sem er orðinn ríkiseign.

Það er því fjarstæða að halda því fram, að það hafi nokkur áhrif á traust bankans, hvort seðlaútgáfunni verður skipað endanlega eða til bráðabirgða, svo framarlega sem kaupin takast.

Enda álíta flm. sjálfir það mjög varhugavert að skipa seðlaútgáfunni endanlega, fyr en útsjeð sje, að ríkið nái kaupum á hlutabrjefum, eins og sjest á síðustu grein frv., þar sem gert er ráð fyrir, að lögin falli úr gildi á næstkomandi hausti, ef ekkert verður af kaupunum.

Það er gert ráð fyrir í 6. gr. frv., að við bankann sjeu tveir kritiskir revisorar, en jeg tel það óþarft; því um leið og landið eignast bankann, þá þarf enga kritiska endurskoðendur, frekar en við Landsbankann, sem er eign landsins. Þar að auki er nú yfir bankanum bankaráð, og þó að það sje nú kannske nafnið tómt sem stendur, þá getur Alþingi krafist þess, að það gerist starfandi og hafi fult eftirlit með störfum bankans. Það eru einnig tvö ákvæði í grein þessari, sem eru algerlega ófær. Það fyrra er það, að endurskoðendur þessi skuli eiga að vera kosnir af sameinuðu þingi. Jeg þarf ekki að færa rök að því, hve fráleitt ákvæði þetta er, því flestir háttv. þm., sem hjer sitja, vita, að flestar slíkar kosningar hafa á sjer meiri eða minni pólitískan blæ. En slíkt verðum við umfram alt að forðast, þegar er að ræða um kosningar í jafnvandasamar stöður.

Hitt ákvæðið er það, að þeir eigi að vera launaðir af bankanum sjálfum. Það miðar að því að gera þá ósjálfstæða og ókritiska; þeir verða bankanum bundnir, og því óhæfir til starfsins. Ef jeg ætti bú norður á landi, og jeg hefði grun um, að þar færi ekki alt fram með feldu, þá mundi jeg ekki biðja ráðsmanninn að launa þeim revisor, sem jeg sendi til höfuðs honum. Nei, þeir menn ættu að sjálfsögðu að vera launaðir úr ríkissjóði.

Þetta, sem jeg nú hefi sagt, er það, sem sjerstaklega vakti fyrir mjer með breytingartillögunum, en jeg býst við, að allir sjeu sammála um það, að kjarni frv. sje góður, og vona jeg, að samkomulag náist innan deildarinnar, svo þetta mikla nauðsynjamál nái fram að ganga.