17.05.1921
Neðri deild: 71. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2358 í B-deild Alþingistíðinda. (2498)

117. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka hlutafjárauka o. fl.

Sveinn Ólafsson:

Mjer hefir skilist, að það væru aðallega tvö atriði, sem væru mikilsvarðandi í þessu máli. Í fyrsta lagi að koma Íslandsbanka á skrið, eða í starfhæft ástand, t. d. með láni eða ábyrgð fyrir láni, svo hann geti leyst af hendi ætlunarverk sitt. Og í öðru lagi að ná seðlaútgáfunni í hendur ríkisins, að svo miklu leyti sem hagfelt er að svo stöddu.

Jeg hefi ekki fundið nein stór atriði önnur; hitt eru aukaatriði, í samanburði við þessi tvö.

Til þess að ná þessum tvöfalda tilgangi, bárum við 3 fram frv. á þskj. 520. En það lítur nú ekki út fyrir, að háttv. Nd., og því síður háttv. Ed., geti felt sig við það, En til þess að þetta gæti skipast skaplega og sem greiðast, þá kom okkur saman um að geyma okkar frv. frá 2. umr. og koma fram með brtt. á þskj. 617 við frv. Ed., og hefir frsm. (M. K.) talað fyrir þeim ljóslega og sýnt fram á nauðsyn þeirra. Verði þessar till. samþ., þá verð jeg að segja, að málið sje komið í sæmilegt horf, þó ekki sje svo æskilegt, sem skyldi. Jeg verð að taka það fram, að stjórnarfrv., sem fyrir lá í þingbyrjun, leysti sæmilega úr öðru framannefndu atriði, seðlaafhendingunni til ríkisins, en hinu atriðinu, að koma bankanum í starfhæft ástand, er þar miður svarað, og virtist liggja beint við að fella inn í stjórnarfrv. ákvæði um það. Í þess stað er mi rekið gegnum þingið frv., sem að flestu er miklu lakara, en þó hagstæðara Íslandsbanka. Við flm. frv. á þskj. 520 höfðum einmitt stjórnarfrv. að undirstöðu.

Það má auðvitað sitt hvað segja um aðrar brtt., sem fram hafa komið við frv.; sumar eru til lítilla bóta, aðrar — að mínu viti — til skaða. Jeg get ekki gert mjer grein fyrir því í svip, hvernig frv. myndi reynast, ef þær yrðu samþyktar, en okkar feldar, en mjer virðist öll meðferð málsins einhliða; lúta að því að tryggja hagsmuni Íslandsbanka.

Jeg finn svo ekki ástæðu til þess að fara lengra út í málið að sinni. Jeg hefi aðeins viljað skýra það, eins og það horfir við mjer, og leggja áherslu á það, að sú skipun, sem jeg hefi talað um, og nálgast má með samþykki á tillögum okkar þm. Ak. (M. K.) og þm. Ísaf. (J. A. J.), komist á, eða sem næst því, sem frv. á þskj. 520 stefnir að.