17.05.1921
Neðri deild: 71. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2369 í B-deild Alþingistíðinda. (2502)
117. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka hlutafjárauka o. fl.
Fjármálaráðherra (M. G.):
Jeg gleymdi áðan að svara fyrirspurn frá háttv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) viðvíkjandi skilningi á 4. gr. frv. um tryggingu seðlanna. Jeg játa, að það er dálítið vafasamt, hvernig eigi að skilja þetta í sambandi við 1. gr. En jeg held, að það sje meining háttv. Ed., að gjaldið greiðist af öllum þessum seðlum, ca. 62,5%, og mundi álíta mig bundinn við það.
Jeg er þessum háttv. þm. (Jak. M.) sammála um það, að rjett sje að samþ. 1. brtt. hans; jeg held, að hjer sje um að ræða villu í frv., því auðvitað er það ríkissjóður, sem gefur seðlana út.
Það er og rjett hjá þessum háttv. þm. (Jak. M.), að seðlaútgáfan er samningamál. En jeg vil bara ekki frest á þeim samningum, heldur hygg jeg rjettast, að út um það sje gert nú.
Sami háttv. þm. (Jak. M.) hafði skilið orð mín á þann veg, að jeg vildi gera Íslandsbanka að privatbanka. Það sagði jeg ekki, en jeg sagðist hingað til hafa verið á þeirri skoðun, að það væri rjett. En jeg vil ganga langt til samkomulags um ýms atriði, þótt veruleg sjeu.
Jeg fæ ekki sjeð, að hlutakaup í bankanum sjeu neitt glæfraatriði, ef tryggilega er um mat á þeim hlutum búið. Og ef landið síðar vill annaðhvort breyta bankanum eða láta hann hætta, þá er það ávalt hægt, þar sem meiri hluti hlutafjárins er þá orðinn innlent fje.
Út af orðum háttv. þm. Ak. (M. K.) vil jeg taka það fram, að það er enginn ágreiningur milli okkar út af 1. brtt., heldur bara út af 2. brtt.
Jeg hefi tekið það fram, að jeg er fylgjandi 2. lið 2. brtt., en þessi liður er, því miður, þannig orðaður, að hann verður að bera upp í einu lagi með 1. lið. Ágreiningurinn milli okkar háttv. þm. Ak. (M. K.). er sá, hvort heimila eigi stjórninni að kaupa hluti fyrir næsta þing eða ekki. Sýnist mjer það í raun og veru ekki stórvægilegt atriði, nema svo sje, að háttv. þm. Ak. (M. K.) setji þetta ákvæði inn, í þeirri von, að næsta þing hindri kaupin; þá játa jeg, að þetta sje verulegt atriði. En ef sú er ekki meining hans, þá er þetta aðeins dálítið fjárhagsatriði, og hefir stjórninni oft verið falið það, sem meira er um vert.
Háttv. þm. Ak. (M. K.) hjelt, að háttv. Ed. mundi ekki taka brtt. illa. Jeg held einmitt, að hún muni taka þeim illa, og að minsta kosti verða þær til þess að tefja þingið, ef þær verða hjer samþyktar. Og jeg tel það skyldu okkar að tefja ekki þingið að óþörfu.
Þessi sami háttv. þm. (M. K.) vildi ekki skilja það, að jeg sagði, að Landsbankinn ætti að vera fyrir landið, en landið ekki fyrir bankann. Jeg tók þar upp orð háttv. 4. þm. Reykv. (M. J.), og jeg álít, að það eigi að styðja Íslandsbanka jafnframt. Ágreiningurinn er um það. hvað langt eigi að ganga til þess að hjálpa bankanum. Og þó jeg ekki vilji, að Íslandsbanki fari í hundana, þá er það algerlega óþarft og óviðeigandi að gefa það í skyn, að jeg vilji hafa Landsbankann að olnbogabarni.
Það er satt, að jeg sagði, að ekki væri víst, að hlutafjárkaupin yrðu um garð gengin fyrir næsta þing. En stjórnin hefir heimild til þess að ljúka þeim eftir frv. Hvort hún notar þá heimild, er ekki hægt að segja um að svo stöddu.
Í enda a-liðs brtt. á þskj. 617 stendur, að stjórnin skuli setja nánari reglur um innköllun seðlanna. Um það, hvernig þær reglur kynnu að verða, get jeg ekkert sagt nú.
Jeg þóttist svara þessum háttv. þm. (M. K.) fullskýrt áðan um skilninginn á 1. lið 2. gr. En það er álitamál, hvort miða eigi við almanaksár eða við 1. maí.
Sje jeg svo ekki ástæðu til að fjölyrða meira, og vona, að umræður fari að styttast. Vil aðeins endurtaka, að það, sem á milli ber, er þetta:
Á að heimila stjórninni að láta hlutakaupin fara fram fyrir næsta þing eða ekki.