19.05.1921
Neðri deild: 74. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2390 í B-deild Alþingistíðinda. (2515)
117. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka hlutafjárauka o. fl.
Jakob Möller:
Það var dálítið atriði í ræðu hæstv. fjrh. (M. G.), í sambandi við brtt. háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.), sem kom mjer til þess að standa upp.
Mjer skilst sem sje, að hæstv. fjrh. (M. G.) sje nú kominn að nokkuð annari niðurstöðu en við síðustu umr. þessa máls. Jeg gerði þá fyrirspurn til hæstv. stjórnar um það, hvernig afhending seðlaútgáfunnar í hendur ríkissjóðs ætti að fara fram, hvort heldur neðan frá eða ofan frá, eða með öðrum orðum, hvort Íslandsbanki ætti að hafa útgáfu toppseðlanna á hendi til loka leyfistímans eða ríkissjóður að taka við henni strax. Og hæstv. fjrh. (M. G.) sagði þá, að sú væri meiningin, að sú útgáfa fjelli til ríkissjóðs.
Eftir till. háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) skilst mjer, að það sje aftur á móti meiningin, að toppurinn sje í höndum Íslandsbanka. Skildist mjer á hæstv. fjrh., að hann gengi inn á þessa till., og hefir hann þá allmjög snúið við blaðinu. Ef því er slegið föstu, að Íslandsbanki eigi að draga inn á fyrsta ári 1 miljón af seðlum, þá leiðir af því, að sú miljón fellur til ríkissjóðs. En það verður þá væntanlega föst útgáfa, svo Íslandsbanki hefir toppseðlana eftir sem áður. Jeg hefi raunar ekkert sjerstakt við þetta að athuga, en vildi aðeins vekja athygli á því.
Jeg legg ekki mikið upp úr því að ákveða hámark seðlaútgáfunnar 31. okt. 1922, og tel þá brtt. í raun og veru þýðingarlausa. Gat og ekki betur skilið en að háttv. till.maður segði, að stjórnin gæti þá, ef þörf væri, heimilað bankanum að gefa út meiri seðla en að þessu hámarki, 8 milj. kr., og auðvitað yrði það gert, hvað sem þessu hámarki líður. Sem stendur sje jeg ekki neinar líkur til þess, að ekki verði þörf fyrir meiri seðlaútgáfu á næsta ári en 8 milj. kr. En til þess að bæta úr þeirri þörf, vill þá háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) helst láta kaupa og flytja inn danska seðla. Jeg get nú fullvissað háttv. þm. um það, að til þess verður ekki gripið, heldur mun stjórnin að sjálfsögðu leyfa bankanum að auka seðlaútgáfu sína eftir þörfum, og láta hann þá heldur greiða vöxtu af þeim seðlum í ríkissjóð heldur en til útlendra banka. Hitt, að flytja inn erlendan gjaldmiðil til almennra viðskifta, væri hrein fjarstæða.
Það hefir verið mikið um það rætt og ritað í öllum löndum, hvernig eigi að fara að því að takmarka seðlaútgáfuna. Er ástandið í því efni síst verst hjer, því að seðlaútgáfan hjer er t. d. helmingi minni en í Danmörku. Og stafar það að vísu vafalaust að miklu leyti af því, að viðskiftum okkar er þannig háttað, að við þurfum ekki eins mikið í reiðufje.
Jeg býst við því, að það verði örðugt hjer sem annarsstaðar að ákveða seðlaútgáfunni takmörk. Ef seðlar eru innleysanlegir og of miklir, þá er komið með þá í bankana aftur og þeir leystir inn, og seðlaútgáfan takmarkar sig þannig sjálf. En ef seðlar eru óinnleysanlegir, þá er öllu verra við þetta að fást. Sýnist þá eina leiðin til takmörkunar sú, að láta bankann greiða vexti af seðlaútgáfunni, þannig, að hann geti engan hag haft af óhæfilega mikilli seðlaútgáfu. Að setja eitthvert hámark, svona alveg út í bláinn, getur orðið viðskiftalífinu og öllum atvinnurekstri stórhættulegt, ef því er þá framfylgt. Að öðrum kosti er það þýðingarlaust.
Háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) sagði, að eina ráðið til þess að íslenskur gjaldeyrir hjeldist í fullu verði væri að takmarka hann þannig, að ávalt væri líka erlendur gjaldeyrir í landinu jafnframt.
En gallinn á þessu er sá, að útlendi gjaldeyririnn helst því aðeins í landinu, að hann sje ekki verðmeiri en sá innlendi. Annars er hann fluttur út. Fyrir þessu er full reynsla fengin hjer á landi, auk þess, sem það liggur í hlutarins eðli. Þetta er því ekkert ráð, eins og allir geta sjeð. Enda mundi og verða „tvíeggjuð“ hjálpin í því, að takmarka íslenskan gjaldeyri og flytja inn útlendan. Það er svo um erlendan gjaldeyri, eins og hverja aðra vöru, að hann fæst ekki fyrir ekki neitt. Ef við kaupum hann, þá aukast auðvitað skuldirnar við útlönd að sama skapi, lánstraustið rýrist, og afleiðingin verður auðvitað, að gengi íslenskrar krónu hlyti að lækka, en ekki að hækka.
Ennfremur talaði þessi háttv. þm. (J. Þ.) um það „nýja hugtak“ að gefa út nýja seðla, eftir því sem viðskiftaþörfin krefur. En jeg verð að vekja athygli hv. þm. á því, að þetta hugtak er jafngamalt Íslandsbanka. Hann hafði upphaflega að lögum heimild til þess að gefa út seðla alt að 21/2 milj. Fyrst í stað þurfti ekki að gefa út fulla miljón kr., en síðan fór seðlaútgáfan smáhækkandi, en vitanlega hafa altaf verið gefnir út seðlar, eins og talið hefir verið að viðskiftaþörfin krefði. Hjer er því ekki komið inn á neina nýja braut. Það er aðeins erfiðara nú, vegna óinnleysanleika seðlanna, að ákveða seðlaþörfina. En í því skyni er alveg þýðingarlaust að setja svona hjegóma ákvæði um hámark seðlaútgáfu í lög, og það því fremur, þegar fyrirfram er heimilað að fara upp úr því.
Hæstv. fjrh. (M. G.) talaði um brtt. hv. 1. þm. Árn. (E. E.) sem „afturgöngur“. Mjer þótti það dálítið merkilegt. Svipaðar till. hafa að vísu komið hjer fram áður, í frv., sem gekk til 2. umr., en var aldrei drepið. Það er því með öllu óviðeigandi að kalla þetta afturgöngur. Og mjer sýnast þessar till. að mörgu leyti svo merkilegar, að jeg vonast til, að hæstv. stjórn geri nú grein fyrir afstöðu sinni til þeirrar skipunar, sem þar er farið fram á. Og það ætti hann því fremur að gera, sem hann, einmitt þegar þessi skipun var hjer til umr. áður, skaut því til flm., að þeir skyldu ekki leggja kapp á að koma því frv. fram, en koma heldur fram með brtt. í sömu átt við Ed. frv. eins og þeir nú hafa gert. Og þó hæstv. fjrh. (M. G.) segi nú, að háttv. Ed. muni ekki samþ. þessar brtt., þá er það engin ástæða, enda liggur ekkert fyrir um það frá háttv. Ed. Og jeg veit ekki til, að þær hafi verið lagðar fyrir deildina, svo að hún gæti áttað sig á þeim. Stjórnin þarf því að gera grein fyrir því frá eigin brjósti, en ekki frá brjósti háttv. Ed., hvers vegna þessar brtt. megi ekki ganga fram. Það er vitanlegt, að Landsbankinn leggur nú mikla áherslu á að fá rjett til þess að gefa út þær 3 milj. kr., sem stjórnarfrv. heimilaði honum. Brtt. háttv. 1. þm. Árn. (E. E.) fara fram á hið sama, og sýnist því undarlegt af stjórninni að virða þær að vettugi.
Jeg skal svo ekki frekar gera grein fyrir afstöðu minni til þessara till. En vona, að stjórnin geri aðra grein fyrir afstöðu sinni til þeirra en þá, að háttv. Ed. sje á móti þeim.
Þessar till. háttv. 1. þm. Árn. (E. E.) fara einmitt í þá átt, sem stjórnarfrv. fór, með skýringum tveggja ráðherranna, og er því kynlegra, hvað hæstv. stjórn virðist nú vera þeim fjandsamleg.