19.05.1921
Neðri deild: 74. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2401 í B-deild Alþingistíðinda. (2520)

117. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka hlutafjárauka o. fl.

Fjármálaráðherra (M. G.):

Mjer sýnist vera orðið allþunnskipað í sætum deildarinnar, og skal jeg því reyna að vera stuttorður, þótt jeg þurfi að svara nokkrum háttv. þm.

Hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.) sagði, að hjer berðust tveir flokkar í þinginu. Drægi annar taum Íslandsbanka, en hinn taum Landsbankans. Sjálfur virtist hann telja sig nokkurskonar hvítan engil, sem stæði utan við flokkadrátt þennan. Jeg veit ekki, hvaðan þessum háttv. þm. (Gunn. S.) kemur rjettur til að bera þingbræður sína slíkum brigslyrðum. Hann sagði, hv. þm.( Gunn. S.), að ráðstöfun sú, sem gert er ráð fyrir í 5. gr. frv., um skipun oddamannsins, gæti hæglega leitt til hlutdrægni. Kvað hann sjer kunnugt um það, að meiri hluti hæstarjettardómaranna ætti hluti í Íslandsbanka. Það má vel vera. En jeg verð nú að segja það, að ef þetta á að hafa þau áhrif, að þeir verði hlutdrægir í þessari útnefningu, þá er fátt sem treysta má í þessu landi. Hvernig á þá að dæma um mál, sem rísa kunna milli ríkisins og bankans. því að sú er tilætlunin, að dómstólarnir skeri úr, ef ágreiningur kemur þar upp. En annars er það venja, að vera ekki að blanda æðstu dómstólum inn í „partí“-deilur.

Háttv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) sagði, að jeg hefði skift um skoðun í máli þessu, og bygði það á því, að jeg mælti með brtt. háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.). En jeg fæ ekki sjeð neitt ósamræmi í því, þótt jeg gefi ákveðna skýringu í einhverju máli, og taki svo vel brtt., sem fram kemur í því máli síðar.

Sami háttv. þm. (Jak. M.) sagði, að jeg hefði ekki fært fram neinar ástæður fyrir því, að jeg væri á móti brtt. háttv. 1. þm. Árn. (E. E.). En jeg sagði, að þær mundu ekki ganga í gegn í þinginu. Þá ástæðu kvaðst hann ekki taka gilda, en það er hægur vandi að berja hausnum við steininn og heimta nýjar og nýjar ástæður, en jeg er ekki skyldur að hlaupa eftir því. (Jak. M.: Hvaða sannanir eru fyrir því að þar nái ekki fram að ganga?). Jeg get ekki sannað, að þær komist ekki í gegn, og háttv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) getur ekki sannað, að þær nái fram að ganga. En jeg legg undir dóm háttv. þm., hvorum þeir trúi betur. (Jak. M.: Reynslan sker úr). Alveg rjett.

Háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) sagði, að matið á hlutunum yrði að vera óhlutdrægt. Það er mikið rjett. Jeg álít, að ráðstafanir þær, sem 5. gr. frv. gerir í því efni, sjeu fullnægjandi til þess að fyrirbyggja hlutdrægni, þar sem aðiljarnir eiga að útnefna til matsins sína 2 mennina hvor og hæstirjettur oddamanninn. Það var útúrsnúningur hjá honum, er hann sagði, að Íslandsbanki yrði að taka þann kost að gefa seðla sína, til þess að koma þeim út. Hann mun hafa ráð á að losna við þá án þess.

Háttv. 1. þm. Árn. (E. E.) sagði, að ef stjórnin gæti bent á betri veg en þann, sem hann kemur með, þá gæti hann fallið frá till. sínum. Jeg hefi aldrei hrósað mjer af því, að jeg væri slyngur í að finna nýja útvegi, en það sem hann er að burðast með, geta allir fundið upp. Það er sem sje ekkert annað en upptugga af því, sem áður hefir komið fram. Annars skal jeg ekki beina mörgum orðum að honum nú; það getur verið, að mjer gefist færi á að ávarpa hann í öðru máli hjer á þinginu að skilnaði. Hann talaði um það, að stjórnin mætti vera sjer þakklát fyrir að bera það fram, sem hún hefði komið fram með í upphafi. Það gæti nú verið, að hún væri það, ef hann hefði þá borið það fram rjett og óbrjálað. En sem vænta mátti er ekki því að heilsa.

Sami háttv. þm. (E. E.) kvað það rangt að kalla þessar till. afturgöngur. En er jeg talaði um afturgöngur, þá átti jeg við peningamálanefndina, því að þessar till. eru ekkert annað en afturgöngur úr henni. Hann spurði, hve margir þm. ættu hluti í Íslandsbanka. Það er mjer ókunnugt um. Jeg get aðeins lýst yfir því, að jeg á engan hlut í honum og hefi aldrei átt.

Um toppseðlana, sem hv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) var að tala um, skal jeg að endingu geta þess, að það er rjett hjá háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.), að þeir geta aldrei verið hjá Íslandsbanka til lengdar, eftir að hann fer að draga inn seðla sína með hluta á ári hverju. Þetta skilja allir; þess er jeg fullviss.