29.03.1921
Neðri deild: 29. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í B-deild Alþingistíðinda. (255)
49. mál, veiting ríkisborgararéttar
Fjármálaráðherra (M. G.):
Af því að hæstv. forsætisráðherra (J. M.) er hjer ekki staddur í deildinni, þá leyfi jeg mjer að óska þess, að hv. deildarmenn leyfi máli þessu fram að ganga. Frv. þetta er svo lítið, að ástæðulaust virðist að vísa því til nefndar. Það er, eins og kunnugt er, komið frá Ed., og var þar í allshn., og ætti fyrir því að liggja að lenda hjer í nefnd, þá er það að sjálfsögðu, samkvæmt þingsköpum, allshn., sem við því á að taka, Það er svo sjálfsagt, að maður sá, er frv. ræðir um, fái ríkisborgararjett, að um það ætli ekki að þurfa að deila.