20.05.1921
Efri deild: 76. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2421 í B-deild Alþingistíðinda. (2562)

135. mál, heimild til lántöku fyrir ríkissjóð

Fjármálaráðherra (M. G.):

Háttv. 2. landsk. þm. (S. E.) taldi það galla á þessu frv., að ekki er þar tekin fram sú fjárhæð, sem upphaflega var þar. Jeg skal játa það, að þetta er mjer að kenna. Mjer þótti það nefnilega viðsjárvert að láta umheiminn sjá, að svo fámenn þjóð sem Íslendingar fari fram á svo mikið lán í einu — 15 miljónir króna, sem væri hlutfallslega það sama og Danir tækju að láni 450 miljónir króna.

Finst mjer í alla staði heppilegra að hafa þetta svo, sem nú er.

Út af ummælum háttv. 2. landsk. þm. (S. E.) um, að jeg hafi nú loks getað fallist á þessa lántöku, skal jeg taka það fram, að jeg hefi aldrei verið á annari skoðun en að rjett væri að heimila landsstjórninni að taka lán. Auk þess er nú fram komin ný ástæða til þess, þar sem ákveðið er að kaupa hlutabrjef Íslandsbanka — en til þess þarf vitanlega mikið fje.

Jeg skal svo ekki orðlengja þetta frekar nú, en vísa til ræðu minnar um þetta mál í háttv. Nd.