20.05.1921
Efri deild: 77. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2423 í B-deild Alþingistíðinda. (2568)

135. mál, heimild til lántöku fyrir ríkissjóð

Fjármálaráðherra (M. G.):

Það gleður mig enn meira, að háttv. 2. landsk. þm. (S. E.) skuli vera farinn að fylgja svo fast fram málum stjórnarinnar sem hann fylgir þessu frv., því að þótt þetta frv. hafi upphaflega komið fram í háttv. Nd., þá stendur nú varla stafur eftir af því, eftir að þær brtt., sem jeg kom með í hv. Nd., voru samþyktar, og það með öllum greiddum atkvæðum, ef jeg man rjett.