10.05.1921
Neðri deild: 66. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2448 í B-deild Alþingistíðinda. (2594)

122. mál, útflutningur og sala síldar

Stefán Stefánsson:

Það var ekki meiningin fyrir mjer að vinna málinu ógagn með ofurkappi.

Með tilliti til þess, sem hæstv. forsrh. (J. M. ) sagði, og jeg býst við, að hæstv. atvrh. (P. J.) líti líkum augum á málið, tek jeg dagskrána aftur. Jeg kem með hana aftur við 3. umr., ef mjer líka ekki breytingarnar.