14.05.1921
Neðri deild: 70. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2458 í B-deild Alþingistíðinda. (2603)

122. mál, útflutningur og sala síldar

Magnús Pjetursson:

Mig langar til þess að segja örfá orð út af einni setningu, sem hraut af vörum hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.). Einnig vildi jeg leyfa mjer að beina lítilli fyrirspurn til hæstv. forsrh. (J. M.) sem lögfræðings.

Jeg er ekki fróður í lögum, og síst í erlendum, og vildi jeg því spyrja hæstv. forsrh. (J. M.), hvort ekki mundi vera í lögum nágrannalandanna svipuð skilyrði sett til rekstrar atvinnuveganna og þau, sem eru í 2. gr. frv.

Hefi jeg ætíð haldið, að Ísland ætti að vera fyrir Íslendinga, og þykir mjer því undarlegur sá úlfaþytur, sem orðið hefir út af því, að útlendingum yrði sett einhver skilyrði fyrir því að mega reka hjer atvinnu sem íslenskir menn. Furðar mig það, að 1. þm. Rang. (Gunn. S.) skuli fetta fingur út í það, að útlendir menn sjeu settir skör lægra en Íslendingar. Má það merkilegt heita, hve sumir hv. þm. eru fljótir að glúpna, ef útlendingum kann að mislíka eitthvað.