14.05.1921
Neðri deild: 70. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2459 í B-deild Alþingistíðinda. (2605)

122. mál, útflutningur og sala síldar

Atvinnumálaráðherra (P. J.):

Það þarf enginn að furða sig á því, þó að mönnum, sem reka hjer síldarútgerð, sárni það, er útlendingar veiða hjer síld við strendur landsins, verka hana í landi og flytja hana út, án nokkurrar íhlutunar af okkar hálfu, og fyrirbyggja með þessu, að við komum okkar síld út fyrir nokkurt þolanlegt verð. Það er þetta, sem hefir ýtt undir útgerðarmenn að fara fram á þetta lagafrv., sem hjer liggur fyrir, sjerstaklega hvað snertir ákvæðið í 2. gr. Jeg hefi mikið talað um þetta mál við útgerðarmenn fyrir norðan, og þeim blæðir mjög í augum yfirgangur útlendinga á þessu sviði. Jeg get tekið undir með háttv. frsm. (M. K.), að ef lögin ekki taka í taumana og styðja að, þá er jeg hræddur um, að lítið verði úr fjelagsskap þeim, sem síldarútgerðarmenn hafa verið að koma á um sameiginlega sölu síldarinnar o. fl. En það er slíkur fjelagsskapur, sem jeg álít nauðsynlegan sem bakhjarl fyrir stjórnina, ef fela á henni aðalumsjón á útflutningi og sölu allrar síldar. Jeg held því að brtt. á þskj. 607, ef þær verða samþ., sjeu til skemda.

Þetta er nú sú hlið málsins, sem að okkur snýr, landsmönnum. Jeg skal ekkert um það segja, hvernig þessi lög reynast í framkvæmdinni út á við. Brtt. á þskj. 599 fara fram á, að fresta megi framkvæmd laganna að nokkru leyti eða öllu, ef stjórnin telur það nauðsynlegt. Þetta mun gert til að fyrirbyggja, að til vandræða reki, ef Norðmenn og Svíar vilja ekki sætta sig við lögin. Það er nú svo sem auðvitað, að stjórnin beitir ekki lögunum, ef hún sjer, að þá muni til vandræða horfa. Það dugir ekki að etja kappi við ofurefli. Þessar stærri þjóðir kynnu að geta látið það bitna á okkur í verkinu á þann hátt, að það væri okkur um megn að taka á móti því. En þetta frv., ef það væri gert að lögum með breytingum meiri hl. sjútvn., þá væri það góður samningsgrundvöllur fyrir okkur, ef Svíar og Norðmenn vildu ekki við lögin una. Það er eftirtektarvert, sem staðið hefir hjer í blöðunum núna, að Svíar hafi mikinn hug á og sjeu að búa sig undir að stunda síldveiðar hjer við land, til þess að geta með því fullnægt sínum þörfum fyrir íslenska síld. Heppnist þeim það, þá lokast markaðurinn fyrir Íslendinga. Mjer finst, að þeir ættu að geta sjeð eðlilega sjálfsvörn okkar í svona lögum, því að það er ekki nema eðlilegt, að þeir, sem njóta þess rjettar að verka veiðina í landhelgi, lifi undir sömu lögum sem landsmenn sjálfir.