20.05.1921
Neðri deild: 76. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2480 í B-deild Alþingistíðinda. (2637)
122. mál, útflutningur og sala síldar
Magnús Jónsson:
Tveir háttv. þingmenn hafa nú minst á þá meðferð, sem frv. þetta hefir fengið í háttv. Ed., og verður ekki neitað, að sú meðferð er ljeleg og deildinni lítt sæmandi.
Jeg verð að andmæla því, sem háttv. þm. Ak. (M. K.) sagði, að orðið hefði vart við undanhald í þessari deild í máli þessu. Skilst mjer, að undanhald þetta eigi að miðast við brtt. okkar háttv. 2. þm. Reykv. (J. B.). Við kusum aðeins aðra aðferð í einu atriði, en jukum við nýju atriði á öðrum stað, sem styrkti stórkostlega, svo að jafnvel það, sem eftir er í frv. og nýtilegt má kallast eftir útreiðina í Ed., er þó sú líftóra, sem blásin var í það af okkur. Sjest af þessu, hversu varasamt það er, þegar hið háa Alþingi er að marka sjer fasta línu með takmarkaðri þingsetu, því eflaust myndi það borga sig, þó að þingið lengdist um 2 daga, ef trygging væri fyrir því, að störf þess yrðu betur unnin.
Þá er jeg ekki sammála háttv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.), að það sje ekkert gagn að frv. eins og það er nú. Stjórnin getur efalaust gert sjer eins mikið gagn af því og frv. var, ef hún aðeins hefir einlægan vilja að framfylgja því, sem komið hefir fram hjer í deildinni. Jeg mun samþ. frv. eins og það er nú og leggja áherslu á, að þetta getur orðið grundvöllur að því, að stjórnin geti haft mikið gagn af því, ef rjett er á haldið. Samkvæmt 2. gr. má upp í reglugerðina taka margt af því, sem var í frv.
Mjer skildist á hæstv. atvrh. (P. J.), þó að orð hans væru ekki sem skýrust nje ákjósanlegust, að hann teldi líklegt, að stjórnin myndi nota þessa heimild.
En jeg vona þá, að hún ekki aðeins noti heimildina, heldur að hún fari eins langt eins og hún sjer sjer fært, og ekki skemmra en ætlast var til hjer áður í háttv. deild.