20.05.1921
Neðri deild: 76. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2485 í B-deild Alþingistíðinda. (2642)
122. mál, útflutningur og sala síldar
Magnús Jónsson:
Jeg er sammála hæstv. atvrh. (P. J.) um, að ekki geti komið til mála, að stjórnin selji síldina í smá-„partíum“ fyrir hvern einstakan síldareiganda,og gæti því heldur eigi verið um það að ræða, að útlendingar, sem veitt hefðu síld hjer, fengju sína síld keypta.
Háttv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) sagði, að við mundum eigi hafa tekið eftir breytingum, sem orðið hefðu á frv., t. d. takmörkunin á veiðinni væri feld burtu.
Jú, við höfum athugað þetta, en þessi takmörkun var einmitt veikasti punkturinn í frv., því það var mjög tvísýnt, hvort hægt yrði að koma takmörkuninni við, en svo er enn þess að geta, að stjórnin getur vel sett takmörkunarákvæði í reglugerðina, sem alveg getur komið í stað ákvæðisins í frv. Það er langt frá, að jeg vilji mæla því bót, hvernig háttv. Ed. hefir leyft sjer að ganga frá frv., en þar fyrir álít jeg samt, að vel megi notfæra sjer þessa heimild, svo að hún komi að miklu gagni. Held jeg, að með framkvæmd þessa frv. gæti fengist nauðsynleg og góð reynsla, en hana vantar einmitt nú, og væri því vel, ef byggja mætti á henni skynsamlega á næsta þingi. Legg jeg einmitt fyrir þetta ríka áherslu á, að frv. verði samþykt. En sennilegt þykir mjer, að ómögulegt verði fyrir stjórnina að framkvæma heimildina, nema með því að koma á samtökum með síldarútgerðarmönnum. Má vera, að fjelag sje til, sem hún getur snúið sjer að.