20.05.1921
Neðri deild: 76. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2491 í B-deild Alþingistíðinda. (2647)

122. mál, útflutningur og sala síldar

Jakob Möller:

Út af því, sem háttv. samþm. minn (J. B.) sagði um skilninginn á 3. gr., að þar væri átt við jafnaðarverð, þá álít jeg að það sje ómögulegt að leggja þann skilning í hana, því að það er beint sagt, að söluverðið skuli greiðast jafnóðum og það er greitt til stjórnarinnar — hún á að afhenda það jafnóðum. Einmitt það verð, sem fæst fyrir hvert „parti“, sem er selt í það og það skiftið. Það er ómögulegt að leggja annan skilning í þessi orð. Jafnaðarverð er ekki hægt að reikna út, fyr en vertíð er úti og öll síldin er seld.