23.02.1921
Neðri deild: 7. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í C-deild Alþingistíðinda. (2663)
14. mál, bann innflutnings á óþörfum varningi
Atvinnumálaráðherra (P. J.):
Jeg skal ekki tefja umræður með langri framsögu.
Eins og mönnum er kunnugt, var á síðasta þingi stjórninni falið að varna innflutningi til landsins á óþarfa varningi. Af þessu flaut, að þegar lögin gengu í gildi, varð landsstjórnin að skipa nefnd, eins og líka af sumum var gert ráð fyrir þá á þinginu. Fyrir aukaþinginu lá frv. til laga um að skipa 5 manna nefnd til þess að hafa íhlutun um peningaviðskifti landsins við útlönd. Var frv. þetta flutt fyrir tillögur stjórna beggja bankanna, og var ekki stjórnarfrv., heldur borið fram af einstökum mönnum. Það var ekki tími til að afgreiða málið í Nd., en því lauk þar á þann hátt, að samþykt var þar rökstudd dagskrá svohljóðandi:
„Í trausti þess, að ríkisstjórnin geri, ef með þarf, nauðsynlegar ráðstafanir til þess að halda uppi jafnvægi í viðskiftum landsins við önnur lönd, sjerstaklega með því að banna innflutning á óþörfum vörum, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“
Eins og menn muna, var innihald frv. þess efnis að fela nefnd íhlutunarrjett um viðskifti landsmanna erlendis og peningagreiðslur til útlanda. Stjórnin taldi nú, samkvæmt vilja þingsins, rjett að fela nefnd þessari, er hún hafði skipað vegna vöruinnflutningsins. meira vald í hendur, og í tilefni af því gaf hún út bráðabirgðalög, sem hjer liggja nú í frv. þessu. Auk þess er í bráðabirgðalögum þessum heimilað að taka 14% af innfluttum varningi til kostnaðar við nefndina.
Það er nú auðsætt, að stjórnin hefir ekki gert annað í þessu máli en það, sem þingið ætlaðist til eða heimilaði.
Jeg býst við, að mál þetta fari í nefnd, og taldi stjórnin rjett, að það færi í fjárhagsnefnd. En nú virðist líklega rjett að vísa málinu til hinnar væntanlegu nefndar, sem áðan var hjer samþ., nefnilega viðskiftamálanefndar.