24.02.1921
Neðri deild: 8. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í C-deild Alþingistíðinda. (2667)

14. mál, bann innflutnings á óþörfum varningi

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg er neyddur til að svara hv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) nokkrum orðum út af ræðu hans í þessu máli í gær, því að jeg fann það, að þessi ræða átti, meðal annars, að vera svar við þeim orðum, er jeg ljet fylgja fjárlagafrv. fyrir árið 1922. Að sönnu svaraði hann þá þegar nokkru, en honum þótti nú ástæða til að gefa þetta svar út í aukinni og endurbættri útgáfu, eftir nokkurra daga umhugsun.

Hann talaði einkum um tvent, lán handa bönkunum og viðskiftahöftin.

Um lánin handa bönkunum hjelt hann því fram, að stjórnin ætti ekki eða hefði ekki átt að spyrja bankana um þetta, heldur skipa þeim að taka lán, því að til þess hefði hún fult vald, bæði að því er snertir Landsbankann og Íslandsbanka. En þessu er jeg ekki samþykkur. Jeg álít, að það hafi verið sjálfsögð kurteisisskylda að spyrja bankana, og jeg held því fram, að þeir hafi getað gefið ábyggilegastar upplýsingar í þessu efni, því þeir vita best, hvað af þeim er heimtað og hvað með þarf af fje og hvað þeir geta af mörkum látið af því. Hitt er vitaskuld, að stjórnin er ekki bundin við svarið, og getur ákveðið annað, en það ræður til, ef hún þykist sjá, að tillagan sje röng. En jeg held því óhikað fram, að bankarnir hljóti sjálfir að vita best um getu sína og þær kröfur, sem til þeirra eru gerðar, og jeg efast ekki um, að svör þeirra hafi verið rjett eftir því, sem þá horfði við, en hvorki þeir nje jeg verða rjettilega um það sakaðir, að ástandið hefir síðan breyst mikið til hins verra. Enginn getur heimtað það, að bankarnir, fremur en aðrir, sjái fyrir óorðna hluti, sem rökrjett ályktun af þeim forsendum, sem kunnar eru, er ályktunin er gerð, leiðir ekki til. Annars skal jeg taka það fram, að það er misskilningur hjá hv. þm. (Jak. M.), að stjórnin geti skipað Íslandsbanka að taka lán, þannig, að hann sje skyldur til að hlýða því. Það er að sönnu svo, að forsætisráðherra er formaður bankaráðsins, en þar eiga sæti auk hans 6 menn, og þeir geta ráðið úrslitum í efnum sem þessu. Og stjórnin, sem slík, hefir þar um ekkert atkvæði. Jeg mun hafa tekið það fram um daginn, að mjer var kunnugt um í haust, að Landsbankinn fjekk í Kaupmannahöfn þau lánsloforð, sem hann fór fram á þá.

Um innflutningshöftin talaði háttv. þm. (Jak. M.) margt og mikið, og jeg skildi hann þannig, að hann áliti, að þau hefðu aukið innflutninginn og að þau hjeldu uppi vöruverðinu. Hið fyrra verð jeg að telja beina fjarstæðu, enda eru það næsta undarleg höft, sem valda þveröfugum úrslitum við það, sem þeim er ætlað að gera, og jeg held þá, að rjettast sje að hætta að kalla þetta höft, með öðrum orðum, innflutningarnir eru ekki heftir, heldur er greitt fyrir þeim. En hvejru er þá hv. þm. (Jak. M.) að berjast á móti? Vill hann þá draga úr innflutningnum með því að hafa hann alfrjálsan? Það er mjög handhægt að rengja skýrslu innflutningsnefndar, en ekki eru það rök í þessu máli, og dæmi það, sem háttv. þm. (Jak. M.) nefndi, sannar ekkert í þessu efni, fremur en aðrar undantekningar. Nei, höftin minka innflutninginn. Á því er enginn efi. Það sýna meðal annars skipin, sem siglt hafa með hálffermi til landsins, og áætlaðar skipaferðir, sem alveg hafa fallið niður. En ef nú svo væri, að þau minkuðu ekki innflutninginn, hvernig geta þau þá haldið uppi vöruverðinu? Það fæ jeg ekki skilið.

Nei, það er best að horfast beint í augu við sannleikann og viðurkenna hann; hann verður hvort sem er ekki kúgaður til lengdar. Það er ekki til neins að neita því, að innflutningshöftin draga úr innflutningi vara. Nú hefi jeg áður sýnt fram á það í þessum sal, að vjer þurfum að spara erlendan gjaldeyri og að það verður með því einu móti gert, svo að verulegu haldi komi, að innflutningur sje minkaður. Þessu hefir ekki verið mótmælt, svo jeg viti, svo jeg tel mjer óhætt að byggja á því. Hitt játa jeg og hefi altaf játað, að þegar verð á erlendum markaði er fallandi, er hætt við, að innflutningshöft haldi verðinu uppi, en undir þann leka má ef til vill setja með verðlagsnefnd, er færi niður verð á birgðum þeim, sem til eru í landinu, jafnskjótt sem samskonar vörur ódýrari gætu verið hingað komnar, færa þær niður eins mikið og verðfallinu nemur. Jeg álít rjett að athuga, hvort ekki sje rjett að stefna með einingu og festu, og mun þá vel duga. Jeg skal skýra þetta með dálitlu dæmi. Kaupmaður á t. d. efni í 1000 klæðnaði er kosta 150 kr. hver. Nú fellur verðið, svo fá má efni í samskonar klæðnað fyrir 75 kr. Þá er ekki ráðið að flytja inn efni í aðra 1000 klæðnaði, heldur að setja niður verðið á því, sem fyrir er, og flytja þá fyrst inn, er þörf er á, því að ella eyðum vjer erlendum gjaldeyri að nauðsynjalausu, en það megum vjer eigi eins og stendur.

Jeg held, að þetta sje besta ráðið, og það verðum vjer að muna, að ástand það, sem nú er í heiminum, er rökrjett afleiðing heimsstyrjaldarinnar. Það er óumflýjanleg afleiðing þess, að hundruð miljóna manna á besta aldri, sem annars hefðu unnið að framleiðslu verðmæta, hafa um nærfelt 4 ára bil ekki unnið að öðru en manndrápum, eyðileggingu og spillingu verðmæta. Það er óumflýjanlegt, að þetta bitni á öllum heiminum, og vjer getum ekki skotist undan að taka vorn hlut. Um það tjáir ekki að mögla og það er ekki til neins að kenna stjórn og þingi um þetta; það er jafnsanngjarnt og kenna stjórn og þingi um eldgos, jarðskjálfta og harðæri. Það eina, sem vjer getum gert, er að draga úr afleiðingunum með bestu ráðum er vjer finnum, og það er oss skylt að gera, hverjum á sína vísu. En það verðum vjer að hafa hugfast, að bót á þessu böli fæst ekki með neinum töfraorðum, slagorðum eða kínalífselixir, heldur með þrautseigju, sjálfsafneitun og sparnaði þjóðarinnar í heild.

Háttv. þm. (Jak. M.) gat um tildrög þessa máls, en ekki fór hann þar alveg rjett með. Mjer er þetta mál manna kunnugast, því að það var jeg, sem samdi frv. það, sem umrædd bráðabirgðalög eru viðauki við. Og það var skýrt tekið fram hjá mjer, sem frsm. þessa máls, að til óþarfavara teldist einnig vörur, sem í raun og veru eru þarfar, en nóg er til af í landinu. Höftin ættu því að ná til slíkra vara meðan nóg væri til af þeim. Með þessari skýringu og með þessum skilningi var frv. samþykt og eftir því hefir stjórnin farið. Þegar jeg bar frv. fram, átti jeg ekki sæti í stjórninni og hafði eigi hugmynd um, að jeg mundi í henni lenda. Og það er ekki stjórnin, sem átti frumkvæðið að frv. því, er hjer liggur fyrir, heldur bankarnir, sjerstaklega Landsbankinn, og það var tekið fram á aukaþinginu í fyrra, að innflutningsnefnd væri nauðsynleg.