24.02.1921
Neðri deild: 8. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í C-deild Alþingistíðinda. (2673)
14. mál, bann innflutnings á óþörfum varningi
Jón Auðunn Jónsson:
Herra forseti. Jeg stend ekki upp til þess að taka þátt í deilum þeim, sem hjer hafa fram farið. Mjer finst það ærið óviðeigandi, að langar umræður skuli vera þegar við 1. umr. málsins og áður en nefndin hefir skilað því frá sjer.
Það, sem jeg vildi segja, er að eins örfáar bendingar til nefndarinnar.
Á síðasta Alþingi var útlitið þegar orðið svo, að öllum hygnum mönnum duldist eigi, að tilfinnanlegur gjaldeyrisskortur mundi verða áður langt um liði.
Verðfall var þá þegar komið á margar íslenskar afurðir, síld og fiskur hvorttveggja stórkostlega fallið í verði. Því var það, að í fjárhagsnefnd var borið fram frv. um takmörkun á innflutningi óþarfa varnings og rökstutt með því, að svo gæti við borið, að takmarka þyrfti innflutning á þörfum varningi, sökum yfirvofandi gjaldeyrisskorts.
Í þinglokin kom ósk um það frá báðum bönkunum, að stjórninni væri heimilað að skipa 5 manna nefnd til þess að hafa umsjón með innflutningi og eftirlit með peningayfirfærslu. Það hefir nú sýnt sig, því miður, að ástæðan var fyrir hendi og ótti bankanna ekki ástæðulaus.
Jeg gat þess í upphafi ræðu minnar, að hygnum mönnum hefði eigi dulist, að hætta var yfirvofandi, og einhver ráð þyrfti að finna til að bæta úr gjaldeyrisskortinum, og til þess var um 3 leiðir að velja:
1. Auka framleiðsluna.
2. Takmarka innflutning.
3. Taka gjaldeyrislán erlendis.
Hvað fyrsta ráðinu viðvíkur, þá er þess að geta, að það er ekki einhlítt; verðið, sem fæst fyrir framleiðsluna, ræður þar miklu um. Framleiðslan á síld hefir t. d. verið mikil, en verðið, sem fengist hefir fyrir hana, lítið. Sama má segja um fiskframleiðsluna. Hún hefir aukist, en gerir þó tæplega að vega á móti verðfallinu, sem orðið hefir á fiski.
Vil jeg minna nefndina á að athuga, hvort fiskframleiðslan muni einmitt ekki vera fullmikil, borin saman við þær markaðshorfur, sem nú eru, og þann markað, sem við getum haft á Spáni og Ítalíu.
Hvað öðru ráðinu viðvíkur, þá er þar um tvær leiðir að velja, annaðhvort að banna innflutning á óþörfum varningi eða skipa viðskiftanefnd til að takmarka innflutning allskonar varnings. Nú er það að vísu svo, að auðveldara er að banna innflutning vissra vörutegunda en að skipa nefnd, en jafnframt er þess gætandi, að bannið gæti aldrei orðið fullnægjandi, bæði vegna þess, að eftirlit með því, að lögunum yrði framfylgt, mundi mjög erfitt, ef ekki ógerlegt, og í öðru lagi það, að það mundi ávalt orka tvímælis, hver varningur er óþarfur og hver ekki, og enn er það, að bannið mundi ekki nægja til þess að bæta úr gjaldeyrisskortinum. Hvað hina leiðina snertir, að skipa nefnd, þá veit jeg að vísu, að það er óvinsælt og árangurinn af starfi nefndarinnar ekki eins mikill fyrst í stað að minsta kosti, sem æskilegt er, en hins vegar sýnist mjer kenna fullmikils bráðlætis hjá sumum háttv. þm., er þeir halda því fram, að viðskiftanefnd sú, er skipuð var á síðastliðnu ári, hafi lítið gagn gert. Það er kunnugt, að margir verslunarsamningar eru oft gerðir þannig, að vörumar eru ekki afhentar fyr en 3–4 mánuðum eftir að samningur er gerður. Nú hygg jeg, að nefndin hafi í upphafi tekið þá stefnu, að ónýta ekki slíka samninga, jafnvel þó vörurnar gætu talist ónauðsynlegar.
Auk þess, sem slík nefnd hlýtur altaf að vera óvinsæl, ber þess að gæta, að hún getur ekki haft full áhrif nema því að eins, að hún fái líka yfirráð yfir öllum erlendum gjaldeyri manna og ráðstöfun hans. En slíkt hefir ekki verið gert, og tel jeg það hið mesta óhapp, enda hefir það orðið til þess, að árangur nefndarstarfsins hefir ekki orðið meiri en orðið er. En ef nefndin hefði haft þessi umráð, hefði hún átt að geta miðlað málum þannig, að útgerðarmenn og aðrir atvinnurekendur yrðu betur settir en þeir menn, sem að eins reka verslun í gróðaskyni. Því það var ekki nema sjálfsagt, að verslunin með erlendan varning þyrfti eitthvað að draga saman seglin, og gæti það, til þess að hinar atvinnugreinarnar, framleiðsla til sjós og lands — þessi þjóðnýtu olnbogabörn — gætu haft meiri umráð erlends gjaldeyris. En nú er það vitanlegt, að þar sem allir atvinnurekendur hafa beðið stórtjón, hafa verslunarmennirnir, sem að eins eru milliliðir, stórgrætt. Og jeg held, að verslunarstjettinni hefði verið það ljúft að lúta slíkum takmörkunum, til hagsmuna fyrir þá, sem framleiðsluatvinnu stunda.
Því hefir verið haldið hjer fram, að bankamir hefðu átt að hafa þetta starf — miðlun erlends gjaldeyris — og það, sem á þessum tímum er nauðsynlegt til þess að halda henni í jafnvægi og stjórna henni. En svo er ekki. Bankastjórnirnar eru blátt áfram svo störfum hlaðnar við daglegar annir, að þær geta ekki bætt þessu á sig, því það heimtar gríðartíma að ræða öll viðskiftamál viðskiftamanna, ráða fram úr erfiðleikum þeirra og finna úrlausnir á viðskiftaörðugleikunum, bæði hjer á landi og erlendis.
Þá kem jeg að þriðja atriðinu — um lántökurnar. Jeg vænti þess þá fyrst um það atriði, að allir geti orðið á eitt sáttir um það, að eins og nú standa sakir um alt fjárfar ríkjanna, sje það alls ekki eftirsóknarvert að taka nokkur lán, nema vissa sje fyrir því, að hægt sje að verja þeim til einhvers þess, sem ágóða gefi. Það mun einnig vera reynsla, að þessi gjaldeyrislán hafi oftast að eins orðið bráðabirgðahjálp, eða svo mun t. d. Norðmönnum vera farið að finnast nú. Þau þóttu bót í bráðina, en meðan inn- og útflutningur stenst ekki á, þykir sækja í sama farið aftur áður en langt um liður. Jeg bendi aðeins á reynslu Norðmanna sem gott dæmi.
Hæstv. fjármálaráðh. (M. G.) gat þess í sambandi við þessi lán, að bankarnir hefðu verið spurðir ráða um nauðsyn þeirra, en svarað neitandi. Til þessa geta legið tvenn rök: 1., að engin þörf væri á lánum, eða 2., að bankarnir treystu sjer ekki til þess að „financiera“ þau, þó þau fengjust og þeirra væri þörf. Jeg hefi að vísu um hvorugt þessara atriða talað við bankastjórana, en skal þó víkja lítillega að þeim, einkum því síðara, en vísa um það fyrra til þess, sem áður er sagt.
Það er vitanlegt, að á meðferð slíks láns mundi verða fyrirsjáanlegt tap, ef ekki yrði hægt að koma því fyrir í atvinnugreinum, sem beinan arð gæfu af sjer — við skulum segja fyrst og fremst til hjálpar botnvörpuútgerðinni. Það mætti því reyna að athuga það, hvort eða hvernig botnvörpungarnir bera sig, eins og nú er ástatt. Eftir áreiðanlegum upplýsingum veit jeg, að útgerð eins botnvörpungs yfir vetrarvertíð kostar nú um 500 þúsund krónur. Á árinu í fyrra, sem var sjerstaklega aflasælt, mun aflabesti botnvörpungurinn hafa fengið um 4 þúsund skippund af fullverkuðum fiski, og þóttu fádæmi. Nú geri jeg ráð fyrir 3 þús. skpd. sem meðalafla, og mun þó hátt reiknað. Útgerðarmenn reikna 2700 skpd. meðalafla. Einnig má gera ráð fyrir því, að þessi fiskur skiftist þannig, að 1800 skpd. sjeu stórfiskur, 500 skpd. smáfiskur og 700 skpd. ýsa, og að fiskurinn sje, eins og gengur, ýmist nr. 1, 2 eða 3, og seljist því á 150, 120 og 100 kr. skpd. Hvað verður þá þetta alt? Það verða um 400 þús. kr. Þrátt fyrir slíkan afla og slíka sölu mundi því samt vanta 100 þús. kr. upp í útgerðarkostnaðinn. Og auk þess verður nú að gera ráð fyrir því, sem ekki er gert hjer, sem sje hinu afskaplega tapi í verðfalli skipanna.
Það hefir verið getið upp á ýmsum orsökum til fjárkreppunnar, og liggja þó sennilega mörg rök að henni, sum óviðráðanleg — sum hefðum við getað ráðið við — og við sum getum við enn þá ráðið. Við gátum t. d. ekki nema að litlu leyti ráðið við verðfallið á afurðunum. Og um sum af hinum atriðunum má segja, að það er auðvelt að vera hygginn eftir á. En um mörg af þeim má segja það — t. d. um botnvörpungakaupin og botnvörpungaútgerðina og Íslandsbanka — að þetta gat hepnast, ef vel tækist — og gat auðvitað líka mishepnast. En það er að minsta kosti eitt í þessu sambandi, sem við getum ráðið bót á, og það eru lifnaðarhættir sjálfra okkar. Það er ekki víst, að við gerum það, en við getum það, og það getur verið, að við verðum neyddir til þess, einmitt vegna fjárkreppunnar og örðugleikanna. Þannig gæti það orðið, að einmitt fjárkreppan sjálf yrði til þess að hjálpa okkur út úr ógöngunum, yrði til þess að kenna okkur að bæta svo okkar eigin lifnaðarhætti, að það yrði til þess að ýmsu leyti að rjetta við þá atvinnuvegi landsins, sem er á fallanda fæti, og fleyta okkur út úr viðskiftakreppunni og byggja íframtíðinni heilbrigðari fjárhagsgrundvöll.