19.03.1921
Neðri deild: 27. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í C-deild Alþingistíðinda. (2687)

14. mál, bann innflutnings á óþörfum varningi

Jón Baldvinsson:

Þó vel geti verið, að rjett hafi verið að setja viðskiftahöftin, þegar þau upphaflega voru sett, og meðan verð allrar vöru fór síhækkandi, þá er öðru máli að gegna nú, þegar verðið er lækkandi. Þá er rjett, að það hverfi úr sögunni. Það er þó ekki svo mjög vegna verðlækkunar þeirrar, sem orðið hefir á matvörum, að jeg held þessu fram. Þeirrar verðlækkunar hygg jeg að landsmenn hafi notið jafnóðum, að minsta kosti á vörum landsverslunarinnar. En það eru fleiri vörur en matvörur nauðsynjavörur, t. d. fatnaður, áhöld ýmisleg o. fl. Þessar vörur hafa lækkað miklu meira í verði en matvörur, en innflutningshöftin aðallega verið gegn þessum vörutegundum. En þeirrar verðlækkunar þurfa menn að njóta hjer. Og þó að viðskiftahöftin sjeu afnumin, held jeg líka, að hemill sje á því, hve mikið verður flutt inn, og sá hemill er gjaldþol almennings. Allir atvinnuvegir eru lamaðir, og það eru engar líkur til þess, að kaupmenn verði svo djarfir, að þeir fari að fylla alt með vörum, því að jeg hygg, að þeir hafi orðið varir við, hversu mjög hefir dregið úr öllum kaupum nú upp á síðkastið. Hins vegar vil jeg virða viðleitni þeirra manna, sem vilja útiloka þær ónauðsynlegu vörur, til þess að spara gjaldeyri landsins. En í framkvæmdinni yrði sá sparnaður ekki svo ýkjamikill, ef feld yrðu úr gildi bráðabirgðalögin og ekki yrði annað eftir en lögin frá 8. mars 1920. Vjer sjáum af verslunarskýrslunum, að mikið hlýtur að vera flutt inn af sumum vörum, þrátt fyrir viðskiftahöftin. Tökum til dæmis gull- og silfurmuni. Það sjest af verslunarskýrslum frá 1916 og 1917, að lítið hefir verið flutt inn af þeim vörum, og alls ekki í neinu samræmi við það, er nú sjest í skrautgripabúðum hjer. Þessar vörur virðast ávalt geta komist inn í landið, enda sumar svo gerðar, að stinga má af þeim í vasa sinn fyrir þúsundir króna. Eins er með silkivefnað og kniplingainnflutning, sem var um 200,000 kr. árið 1917. Þessar vörur geta komið þrátt fyrir öll höft. Af öðrum vörum, sem má útiloka, af því að þær eru svo fyrirferðarmiklar, má nefna t. d. niðursoðnar vörur, kjöt, fisk og ávexti, en aðrar vörur munu þá koma í staðinn. Sama er að segja um kex og kökur. Þannig yrði þetta fyrirkomulag afskaplega ranglátt, og sumar vörurnar koma eins eftir sem áður.

Í nál., sem hjer liggur fyrir, er sagt, að að samkomulagi hafi orðið í nefndinni að leggja það á vald stjórnarinnar, hvort hún noti heimildarlögin frá 8. mars eða ekki. Það er minn skilningur, að þetta orðalag eigi að vera nokkurskonar brú fyrir hæstv. stjórn, og sett með tilliti til þeirrar skoðunar, sem hún hefir áður haft á málinu, án þess að meiri hlutinn ætlaðist til þess, að hún notaði heimildarlögin, enda hygg jeg hæstv. stjórn vera komna á þá skoðun, að hún ætli sjer ekki að nota þessa heimild, og byggi jeg það á þeim orðum, er hæstv. atvrh. (P. J.) sagði, þegar vantraustið var á ferðinni, að stjórnin gæti alls ekki notað heimildina frá 8. mars, nema viðskiftanefndin starfaði. Og jeg veit ekki betur en hæstv. stjórn hafi fallist á það að afnema viðskiftanefndina. En úr því að hún hefir afnumið viðskiftanefndina, þá er minn skilningur á orðalaginu rjettur. Og það er með þessum skilningi, að jeg greiði atkv. með því, að bráðabirgðalögin falli úr gildi, að stjórnin noti alls ekki heimildina.