21.03.1921
Neðri deild: 28. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 75 í C-deild Alþingistíðinda. (2692)

14. mál, bann innflutnings á óþörfum varningi

Þorleifur Guðmundsson:

Viðskiftahöftin hafa reynst óþægil. fyrir Rvíkinga að ýmsu leyti, og þaðan hefir vaknað alda í þá átt að afnema þau með öllu. Jeg vil ekki mæla þeim bót, og síst í því formi, sem þau eru nú í, en hins vegar tel jeg varhugavert að leysa þau algerlega upp þegar í stað. Það nægir ekki að líta á það eitt, hvað einstökum mönnum er þægilegt eða ekki. það verður fyrst að líta á hag og velferð þjóðfjelagsheildarinnar. Við höfum þegar stofnað oss í of miklar skuldir, og þær myndu aukast eins og á í vexti, ef stíflurnar yrðu teknar úr nú og allur innflutningur leyfður. Jeg bið menn þó að skilja ekki orð mín svo, að jeg vilji halda þeim í núverandi mynd með viðskiftanefnd og öllu því, sem þar til heyrir.

Þegar lög frá 8. mars 1920 voru til umræðu á síðasta þingi, þá var jeg þeim meðmæltur, með það fyrir augum, að innflutningur á óþörfum varningi yrði takmarkaður á þann hátt, að kveðið væri á í reglugerð, hvaða vörutegundum skyldi bannaður innflutningur á, en ekki að skipuð yrði viðskiftanefnd, sem hefði umsjón með öllum innflutningi til landsins.

Allir þurftu að snúa sjer til þessarar nefndar; þeir áttu alt undir náð hennar og gátu aldrei verið vissir í sínum sökum. Og innflutningurinn virtist ekki ávalt fara eftir þörfum þjóðarinnar, heldur eftir þörfum einstakra manna — oft og einatt. Þessa ráðstöfun stjórnarinnar má að vísu afsaka með því, að vörur fóru hækkandi um það leyti er nefndin var skipuð, en nú horfir þetta öðruvísi við. Nú fara vörur lækkandi, og þess vegna er ekki hætta á því, að of mikið verði flutt inn af nauðsynjavörum. Af þessum ástæðum mun jeg greiða atkvæði gegn frv., en í því atkv. felst ekki, að jeg vilji láta flytja inn óþarfa varning óhindrað og takmarkalaust.

Það má ekki setja það fyrir sig, þótt það komi einstökum mönnum illa. Þjóðin getur ekki borið aðra menn en þá, sem starfa að framleiðslu, starfa til þarfa. Gjaldþol okkar er svo lítið, að við getum ekki staðið straum af útgjöldum til annara en þeirra, sem starfa í þjónustu ríkisins.

Eins og jeg tók fram áðan, álít jeg, að ekki sje leggjandi út í að afnema viðskiftahöftin, nema með því að eitthvað verði sett í stað þeirra, sem kemur í veg fyrir innflutning á óþörfum varningi inn í landið. Jeg álít það ranglátt gagnvart þjóðinni. Við höfum lifað yfir efni fram síðustu árin, og við verðum að læra að spara, venja okkur á að neita okkur um ýmsan óþarfa, sem við getum vel án verið. Þótt upplýst hafi verið, að innflutningur ýmiskonar glingurs og annars óþarfa næmi eigi meiru en 200–400 þús. krónum árlega, þá sjer hver maður, að slíkt nær engri átt. Jeg ímynda mjer, að hægt væri að sanna, að einstakar verslanir hjer í Rvík flytji inn ýmsar óþarfar vörutegundir fyrir alt að 200 þús. kr. hver. — Jeg veit að vísu, að hægt er að tala um þessa hluti en framkvæma þá, veit, að örðugt muni að tilgreina vörutegundir, sem bannaður skuli innflutningur á, til þess að fullkomið rjettlæti sje í. En jeg er sammála háttv. þm. Borgf. (P. O.) um það, sem hann benti á, þótt jeg geti eigi þar með sagt, hvort taka skuli alt, sem hann nefndi, eða fella eitthvað þar úr og bæta öðru við.

Háttv. þm. V.-Ísf. (Ó. P.) gat þess, að varasamt væri að banna innflutning á þessum vörutegundum vegna þess, að margir, sem fást við verslun, mundu missa við það atvinnu. Hann gat þess og, að sumt af þessu fólki gæti eigi stundað aðra atvinnu og gæti orðið fyrir þessa sök handbendi vandafólks síns eða jafnvel þjóðfjelagsins. En þetta má ekki taka til greina. Þjóðin getur ekki borið þessa menn. Hún getur ekki borið þá, sem fást við óþörf störf, og þeir, sem ekki geta starfað til þarfa, verða að fara aðrar atvinnuleiðir. Jeg veit, að margt þessara manna eru góðir menn. En það dugir ekki að setja það fyrir sig. Og jeg vil segja það, að þótt jeg sje ekki einn af þeim, sem álit alla kaupmenn óþarfa — því góða og atorkusama kaupmenn þurfum við að eiga — þá er kaupmannastjett vor orðin svo fjölmenn, að þjóðin getur eigi risið undir henni. Hún er orðin sá skattur á þjóðinni, sem hún getur eigi borið. Hún ekki að eins tekur fje, heldur og fólk frá framleiðslunni. Fjöldi manna flytur til bæjanna og stundar þar glingursölu og annan óþarfa, en um leið stynja atvinnuvegir þjóðarinnar undan fólksskorti.

Jeg álít, að ganga beri svo langt, að bannaður skuli innflutningur á öllum óþörfum vörutegundum. Og jeg vil biðja þingmenn að gæta þess vel og athuga, að við erum að verða peningalausir.

Ef hægt er að taka lán og nauðsynlegt er að taka gjaldeyrislán til þess að bjarga okkur úr klípu, þá verðum við auðvitað að neyðast til þess. En við verðum jafnframt að athuga, hvort hægt sje að borga það, og jeg sje ekki, að unt verði með sama áframhaldi að standa straum af hærri skuldasúpu en þegar hvílir á okkur.

Það hefir verið bent á tvær leiðir til þess að rjetta þjóðina við og bjarga henni úr vandræðunum, en um þær hafa menn ekki orðið sammála. Annar segir: tökum lán, en hinn segir: við verðum að spara. Jeg segi: við verðum fyrst og fremst að spara, en við verðum einnig að taka lán, ef við sjáum úrræði til þess að greiða það.

Annars er eitt, sem við höfum sparað um of undanfarið, og það er vinnan. Eftir því sem næst verður komist, þá eru það 20 þúsund manns, sem vinna að beinni framleiðslu hjer á landi. Sje nú íbúatala landsins um 90 þúsund, þá eru það 70 þúsund, sem lifa á vinnu þessara 20 þús. manna.

Þessir menn lifa þægilegra lífi og heimta meiri tekjur og meiri virðing þjóðfjelagsins en hinir, svo að eðlilegt er, að þeim fækki, sem vinna að framleiðslunni í landinu, og fari fækkandi og fólkið hverfi frá framleiðslustörfunum.

Úr minni sveit ætla 12 bændur að flytja burt í vor — og fárra er von í staðinn. Þeir hætta búskap vegna skattanna, sem þeir fá eigi risið undir. Við verðum því að sporna við innflutningi á óþörfum varningi í landið. Enginn þarf að komast á vonarvöl, þótt hann geti eigi stundað verslun með slíkar vörur. Fólkið getur farið upp í sveitirnar. Þar bíða engjarnar óslegnar og garðarnir óplægðir. Og ef farið er út á sjóinn, er fiskurinn nægur. Það getur verið, að sjórinn sje oft svo úfinn, að ónytjungum sje ekki hent að etja kappi við hann, en hann er líka oft ládauður, og þá býður Ægir öllum út á bátinn með öngul, net og vað, og þar liggur margur fiskur undir steini, sem virðist bíða eftir því, að einhver nenni að krækja hann. Og til þess að sækja fiskinn á þennan hátt þarf hvorki dýr kol nje dýra yfirmenn.

Ykkur þykir þetta ef til vill broslegt, en haldið þið, að þjóðin geti oltið áfram í ráðleysi eftirleiðis.

Jeg vil, að viðskiftahömlum þeim, sem gilt hafa undanfarið, verði af ljett, en að jafnframt verði gefin út reglugerð, samkvæmt heimild, sem stjórnin fær hjá þinginu, um, hvaða vörum skuli bannaður innflutningur á. Verslunarstjettin verður þá betur sett en nú. Hún veit, að hverju hún gengur og hvað henni ber að gera.

Jeg vona að þið skiljið, hvað jeg hefi meint með þessu, þótt það hafi kann ske ekki látið vel í eyrum áheyrenda og sumra þingmanna.

Stjórnin verður að innræta þjóðinni virðing fyrir vinnunni. Og jeg verð jafnvel að fara fram á það, að Reykvíkingar taki sjer það fyrir hendur að vinna eitthvert þarflegt verk 2–3 tíma á dag, svo sem að rækta upp móana í kring um bæinn, sjer til heilsubótar og þjóðinni til gagns, í stað þessara svo nefndu „spássertúra“ og hlaupa með bolta á tánum út um alla mela, eftir vissum reglum.