21.03.1921
Neðri deild: 28. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 136 í C-deild Alþingistíðinda. (2721)

61. mál, skipting Ísafjarðarprestakalls

Gunnar Sigurðsson:

Jeg stend upp til þess að gerast sáttasemjari í málinu. Mjer er talsvert kunnugt um erfiðleikana þar vestra, hefi sjálfur ferðast þar og verið nær druknaður á leiðinni milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur. Þó held jeg rjettast, að hjer verði málum miðlað þannig, að frv. biði nú, en að þingið jafnframt gefi einskonar vonarbrjef um að taka upp málið aftur á næstunni. Með því að samþykkja frv. nú gefum við fordæmi, sem getur verið varhugavert á þessum erfiðu tímum. En ef Bolvíkingar eru jafntrúhneigðir og áhugasamir og háttv. flutningsmenn láta, þá ætti þeim að vera opin leið að stofna hjá sjer fríkirkju, ekki síst þar sem þetta er mannmargt hjerað. En mjer þykir þó vafasamt, að þeir geri það, því jeg býst ekki við, að Bolvíkingar líti svo á, eins og hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) ætlar, að sáluhjálp þeirra sje beinlínis í veði, þótt það dragist um 2–3 ár, að þeir fái sjerstakan prest. Jeg hygg því rjettast, að það gæti orðið að samkomulagi hjer, að máli þessu væri frestað.