21.03.1921
Neðri deild: 28. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í C-deild Alþingistíðinda. (2726)

61. mál, skipting Ísafjarðarprestakalls

Frsm. minni hl. (Sigurður Stefánsson):

Jeg get nú verið stuttorður, með því háttv. 4. þm. Reykv. (M. J.) og meðflm. minn (J. A. J.) hafa að miklu leyti hrakið það, sem háttv. frsm. meiri hl. (P. O.) hefir sagt um þetta mál.

Það er undarlegt, að hann skuli berja það blákalt fram, að það hafi verið velt miklu starfi af prestunum með fræðslulögunum. Jeg vildi, að hann nefndi dæmi þess, að prestar hafi kent börnum sögu, náttúrufræði, landafræði og aðrar greinar, sem nú eru kendar í bamaskólanum. Hafi þeir ekki kent þær áður, þá er engu ljett af þeim, en það hefir aldrei hvílt á þeim skylda að kenna þær.

Háttv. 4. þm. Reykv. (M. J.) veit það af eigin reynslu, að barnafræðslan í skólunum er ekki einhlít, og samviskusamir prestar hafa eftirlit með henni og framkvæma það enn, eins og á undan lögunum.

Það má ekki taka dæmi af prestum, sem vanrækja starf sitt og hvorki fyrir eða eftir að fræðslulögin gengu í gildi hafa rækt starf sitt sem skylduræknir embættismenn.

Það eru í þessari stjett, eins og flestum öðrum, til þeir menn, sem svo er farið.

Jeg hefi aldrei sagt að Hólssókn yrði nú þegar fjölmennasta prestakall landsins, en með þeim fjölmennustu. Það vill nú svo vel til, að jeg hefi nýlega athugað þetta atriði, og samkvæmt þeirri athugun verður Hólsprestakall 13. eða 14. í röðinni að fólksfjölda, og þá er það ekki mjög fjarri sanni, að það sje eitt með fjölmennari prestaköllum landsins. Þegar þar við bætast örðugleikarnir á að þjóna sókninni með öðru fjölmennu prestakalli, þá er það ærin ástæða fyrir því að skifta því.

Hv. frsm. meiri hl. (P. O) færði til ummæli prests, sem hefði þjónað þar í 35 ár. Jeg þekki þann sómamann mætavel, og ósannar það ekkert, sem jeg hefi sagt. Hitt hefi jeg bent á, að þá voru þær ástæður fyrir hendi, sem eru ekki nú, og miklu hægra að þjóna sókninni. En þó var svo komið, að hann sá sjer ekki fært annað en taka aðstoðarprest síðustu ár sín, og var hann þó þrekmaður mikill og heilsugóður.

Það, sem hv. frsm. meiri hl. (P. O.) sagði um samgöngurnar milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar, að þær mundu þær sömu og áður, og að presturinn mundi geta notað þær til að fara á annexíuna, hefir verið marghrakið. Það er tilviljun ein, ef ferðir falla á þá daga, sem presturinn þarf að fara á annexíuna, eða laugardagsferðir.

Þá er það undantekning, að presturinn nú geti notað tækifærisferðir, Sökum dýrleika bátaferðanna fara Bolvíkingar ekki til Ísafjarðar í kaupstað nema brýna nauðsyn beri til, og það þá einkum, þegar þeir þurfa að sækja á Ísafjörð vörur, eftir skipakomur þangað.

Það liggur í augum uppi, að það er ekki hægt fyrir prestinn að byggja á þessum ferðum.

Hv. frsm. meiri hl. (P. O.) talaði um prestakallið, sem jeg þjónaði. Þó að það prestakall sje örðugt, þá er svo háttað, að það liggur inni í miðju Djúpi, og þar getur dögum saman verið logn og ládeyða, þótt lítt fært veður sje á sjó og landi frá Ísafirði til Bolungarvíkur. Það hefir varla komið fyrir, að jeg hafi tafist, vegna veðurs, meira en einn dag, þessi 40 ár, sem jeg er búinn að þjóna því prestakalli.

Þá kem jeg að þeirri kristindómsþekkingu og siðgæðisáhrifum, sem tímarit og guðfræðibækur flytja fólkinu, eftir orðum hv. þm. Borgf. (P. O.). Það er hægt að slá þessu fram, en fyrir mig hefir það ekkert sönnunargildi. Það er margt í þessum bókum, sem jeg álit ekki holt fyrir börn og óþroskaða unglinga að lesa, og á jeg þar ekki við neina sjerstaka trúarstefnu. Jeg held, að það yrði ekkert happaráð að slá öllum áhyggjum sínum á þessi tímarit og guðsorðabækur, og jeg býst ekki við, að hv. þm. (P. O.) sje á þeirri skoðun í raun og veru.

Jeg skal viðurkenna það, að varhugavert er að bæta við nýjum embættum á slíkum tímum sem þessum, en hitt tel jeg ekki rjett, að neita öllum slíkum málaleitunum umsvifalaust, hve sanngjarnar og rjettmætar sem þær kunna að vera. Jeg lít svo á, að það sje skylda ríkisins að sjá þjóðinni fyrir nægilegri prestþjónustu; ríkið hefir þá skyldu að styðja og vernda þjóðkirkjuna, og hjer er ekki farið fram á annað en það, sem fylsta sanngirni mælir með.

Þá er borin fram sú mótbára, að aðrir söfnuðir muni rísa upp og heimta presta. Jeg álít það bera vott um of mikið þroskaleysi hjá þinginu, ef það treystist ekki til að meta rjett þörfina í hvert skifti, en telur sjer skylt að hlaupa eftir öllum áskorunum, ef það viðurkenni rjettmæti einnar, við hversu lítil rök sem þær hafa að styðjast.

Jeg vil ekki lengja umr. meira og sest því niður, en helst vildi jeg, að málið yrði til lykta leitt nú, felt eða samþ., og legg jeg það á vald hv. þm. og sann girni þeirra, hvorn kostinn þeir taka.