21.03.1921
Neðri deild: 28. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í C-deild Alþingistíðinda. (2729)

61. mál, skipting Ísafjarðarprestakalls

Magnús Jónsson:

Það er aðeins örstutt athugasemd. Hv. þm. Borgf. (P. O.) fann ástæðu til að minnast á háskólakenslu mína í sambandi við þetta mál, þó að hún sje því algerlega óviðkomandi. Rakalausum aðdróttunum svara jeg ekki, en mjer þykir leitt, að hv. þm. (P. O.) skyldi verða til þess að auglýsa fáfræði sína og þekkingarskort á þeim efnum, sem hann reyndi að gera að umtalsefni. En ef til vill má segja um hv. þm. (P. O.), að það sje sama, í hvorri Keflavíkinni hann rær í þessu efni og sje því ekki svaraverður.