29.03.1921
Neðri deild: 29. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 158 í C-deild Alþingistíðinda. (2739)

61. mál, skipting Ísafjarðarprestakalls

2739Frsm. minni hl. (Sigurður Stefánsson):

Jeg verð nú að segja það, að mjer kom það dálítið á óvart, að umr. skyldu nú hefjast um þetta mál aftur. Jeg hafði ekki búist við því, og síst að sparnaðarmennirnir yrðu til þess, því vita mega þeir það, þeir góðu menn, að hver stundin er dýr, sem tefur fyrir störfum Alþingis, og að langar umr. kosta landið ekki alllítið, og er það allilt, þegar þær eru ekki þarfari en hjer á sjer stað. Jeg álít, að menn hafi rætt málið svo við 2. umr., að þennan dagskrárleik hefði ekki þurft að hefja nú.

Viðvíkjandi þessum efa, sem altaf er að smástinga upp höfðinu hjer í deildinni, og nú síðast í ræðu hv. 1. þm. Árn. (E. E.), að prestarnir sjeu nú á tímum ekki eins nauðsynlegir og áður, starfsemi þeirra gagnslaus og margir embættismenn þarfari, þá er því til að svara, að hafi prestarnir verið nauðsynlegir fyr á tímum, eða fram á okkar daga, þá hljóta þeir að vera það enn, og það engu síður.

En svo má líka líta á þetta mál frá hlið safnaðanna, sem leita til þingsins í þessu efni. Þeir viðurkenna fyllilega nauðsyn þessa máls og telja prestana þarfa þjóðfjelaginu. Er þá ekki hart að láta öll mál, sem snerta andlegu stjettina, gjalda þess, að ríkið þurfi að spara. Það er eins og hv. þm. telji sig svo bundna við atkv. sitt í þessu máli, að þeir megi alls ekki frá því víkja í öðrum líkum málum, án tillits til þess, hvort þar stendur nokkuð líkt á. En jeg tel mig ekki bundinn við það og treysti mjer vel að taka aðra afstöðu til annara líkra mála, þrátt fyrir það, þó að jeg ljái þessu máli fylgi, og sama heimta jeg af öðrum hv. þm. Jeg veit, að enginn getur borið mjer það, að jeg sje eyðslusamur á landsfje, hvorki í þessu máli nje öðrum, en jeg lít á brýna og bráða nauðsyn þessa máls, að það nái fram að ganga, eins og jeg hefi margbent á.

Hv. 1. þm. N.-M. (Þorst. J.) talaði eiginlega bæði með og móti frv., þótt hann yrði helst á móti því að lokum, og að mjer skildist af tómum sparnaði. Það er fjarri mjer að lasta sparnaðarmennina, en jeg krefst þess af þeim, er drepa vilja þetta mál, að þeir verði þá sjálfum sjer samkvæmir síðar meir og greiði atkv. á móti öllum auknum embættisbreytingum, hver sem í hlut á og hvernig sem á stendur. (Þorst J.: Jeg vil veita prestinum erfiðleikauppbót.). En það kemur ekki að neinu haldi, eins og hv. þm. Ísaf. (J. A. J.) rjettilega tók fram. Presturinn segist ekki geta komist yfir að þjóna þessum mannmörgu sóknum, hafi hvorki krafta nje tíma til þess, og úr því slík játun hans liggur fyrir þinginu, þá er ástæðulaust með öllu að fara að troða upp á hann erfiðleikauppbót.

Hv. 2. þm. Árn. (Þorl. G.) þótti það undarlegt, að frv. skyldi sigla jafngóðan byr frá 2. umr., eins og raun varð á, en því undarlegra finst mjer, að þeir skyldu ekki þá koma með athugasemdir sínar, úr því þeir höfðu ætlað sjer að drepa frv., og því fremur, sem við flm. mæltumst til þess, að því aðeins hjeldi málið til 3. umr., að nokkurn veginn vissa væri fengin fyrir því, að það ætti að fá að ganga fram í þinginu. — Þá mintist sami hv. þm. (Þorl. G.) á frv., sem jeg hafði verið með að flytja, um lækkun dýrtíðaruppbótar. En hv. þm. (Þorl. G.) skýst þar, er hann segir, að jeg muni hafa horfið frá þeirri lækkun með því að taka frv. aftur. Þetta sýnir, að hann hefir ekki kynt sjer annað frv., er jeg og fleiri þm. flytjum um sama efni og fer fram á miklu meiri lækkun. Þykist jeg því ekki hafa hopað af hólmi nje breytt í nokkru hinni upprunalegu stefnu hins afturtekna frv.

Fleira þykist jeg ekki þurfa að taka fram, en jeg vona, að hv. deild hafi ekki snúist hugur frá því að hún samþ. frv. þetta við síðustu umr. og felli því hina rökstuddu dagskrá. En hitt er mjer gleði, að dagskráin er komin fram af tómum sparnaði, og vænti jeg þá, að þeir menn, sem henni fylgja af þeim ástæðum, hviki ekki frá þeirri stefnu í öðrum málum, sem fyrir kunna að koma siðar á þessu þingi og minni nauðsynjamál eru.