30.03.1921
Efri deild: 30. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í C-deild Alþingistíðinda. (2746)
61. mál, skipting Ísafjarðarprestakalls
Guðmundur Guðfinnsson:
Jeg vil láta fylgja þessu frv. fáein orð til nefndarinnar.
Það hafa altaf verið sparnaðarmenn á þingi, og svo er einnig nú, og sparnaðarstefnan hefir sjaldan haft jafngóðan byr eins og einmitt nú. Jeg er því hissa á, að gamall sparnaðarmaður skuli flytja þetta frv., um fjölgun embættismanna, og ekki nauðsynlegri en hjer er um að ræða.
það eru aðallega tvær ástæður, sem bornar eru fram fyrir frv. þessu. Fyrst sú, hversu erfitt Hólssóknarmönnum sje að ná til prestsins, og í öðru lagi, hversu erfitt og dýrt sje fyrir prestinn að komast til safnaðarins. Um fyrra atriðið er það að segja, að víðar er erfitt að ná í embættismenn, og þá sjerstaklega læknana. Er því engin ástæða til að skifta þessu prestakalli, fremur en öðrum, sem erfið eru.
Jeg veit auðvitað ekki, hve kirkjuræknin er á háu stigi hjá þeim þar vestur í Hólssókninni, en annarsstaðar er hún svo ljeleg, að lítil ástæða virðist vera fyrir löggjafarvaldið að ausa út fje til þess að fjölga messum í einstökum sóknum, og því engin ástæða til að samþ. frv. þetta. Hvað snertir erfiðleika prestsins, þá er hann vitaskuld skyldugur til að kosta ferðirnar. En þar sem þær eru vitanlega mjög dýrar, þá vil jeg leggja til, að honum verði veitt erfiðleikauppbót.
Jeg hefi tekið þetta fram til athugunar fyrir nefndina.