30.03.1921
Efri deild: 30. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í C-deild Alþingistíðinda. (2747)
61. mál, skipting Ísafjarðarprestakalls
Guðmundur Ólafsson:
Jeg get verið sammála hv. 2. þm. Rang. (G. Guðf.) í því, að ekki sje ástæða til að fjölga prestum, úr því ekki er hægt að fjölga læknum. — Jeg er kallaður sparnaðarmaður og get því ekki fallist á, að frv. verði samþ., en ekki af því, að jeg telji það óþarft. Hv. þm. (G. Guðf.) sagði, að fólk væri nú svo ókirkjurækið, að engin ástæða væri til þess að fjölga prestunum. En það er einmitt löggjafarvaldið, sem með skiftingu prestakallanna hefir eyðilagt kirkjuaðsóknina. Þetta tel jeg ekki vel farið. Við Húnvetningar höfum orðið fyrir einni samsteypunni, og hefir löggjafarvaldið með henni látið okkur greinilega vita, að við þyrftum ekki á prestum að halda.
Mjer finst illa sitja á hv. 2. þm. Rang. (G. Guðf.) að vilja heldur veita erfiðleikauppbót heldur en stofna nýtt prestakall. Þessu er jeg algerlega mótfallinn, því að með því er aðeins bætt úr þörf eins manns, en ekki safnaðarins alls. En jeg get þó ekki verið með þessu frv. að svo stöddu, því að byrðarnar á þjóðinni eru svo miklar, að tæplega verður undir meiru risið.