30.03.1921
Efri deild: 30. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 165 í C-deild Alþingistíðinda. (2748)
61. mál, skipting Ísafjarðarprestakalls
Guðjón Guðlaugsson:
Af því að heyrst hefir á þeim, sem tekið hafa til máls, að þeir eru á móti frv. því, sem hjer er til umr., þá stend jeg upp, þar sem jeg er sjerstaklega kunnugur öllum staðháttum þar vestra. Jeg veit vel, að fjárhagsörðugleikarnir eru miklir, en þrátt fyrir það mun jeg greiða frv. þessu atkv. mitt. Jeg geri það sökum þess, að jeg hefi gert það áður, og úr því verið er að hafa presta, finst mjer rjett, að þessi sókn fái sjerstakan prest, því að kauptúnið er fjölment og því óeðlilegt, að það hafi prest með einu fjölmennasta prestakalli landsins, þar sem Ísafjörður er. Þetta nýja prestakall, sem hjer er talað um að stofna, yrði fyrir ofan meðaltal að fólksfjölda, samanborið við önnur prestaköll landsins.
Þetta er þó ekki aðalatriðið, heldur hitt, að prestsþjónusta Ísafjarðarprestsins í Bolungarvík getur aldrei orðið viðunandi, því að ferðirnar þar á milli eru svo erfiðar, dýrar og hættulegar, að oft getur presturinn alls ekki farið, hvað sem við liggur, því landleiðin er oft ófær og sjóleiðin mjög örðug; þó oft sýnist t. d. fært, þegar lagt er af stað frá Ísafirði, getur verið alófært þegar til Bolungarvíkur kemur, því að þar er mjög brimasamt.
Af framangreindum ástæðum verð jeg, þrátt fyrir sparsemisstefnuna, sem jeg vil fylgja, að greiða atkv. með frv. þessu.
Jeg er á sama máli og háttv. 1. þm. Húnv. (G. Ó.), að það sje ekki rjett að greiða erfiðleikauppbót, eins og háttv. 2. þm. Rang. (G. Guðf.) stakk upp á, því að með því er aðeins greitt úr þörf prestsins, en söfnuðurinn er ekki hóti nær fyrir það.
Jeg hefi jafnvel heyrt, að prestur sá, sem nú er á Ísafirði og sagður er mjög samviskusamur maður, vildi alls ekki vera prestur þar, ef Hólssókn verður ekki gerð að sjerstöku prestakalli, og getur því erfiðleikauppbótin ef til vill alls ekki haldið honum. Gæti því vel farið svo, ef prestaskifti yrðu, að þeir yrðu jafnvel ver settir en áður, þrátt fyrir erfiðleikauppbótina, ef þeir fengju annan prest, sem ekki væri eins samviskusamur.
Jeg segi þetta allshn. til athugunar, en hins vegar get jeg ekki verið harðorður í garð þeirra, sem vilja spara á þessum tímum.