05.04.1921
Neðri deild: 35. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í C-deild Alþingistíðinda. (2789)
70. mál, kosningaréttur og kjörgengi til bæjarstjórnar og sveitarstjórnar
Jón Baldvinsson:
Eins og tekið er fram í greinargerð frv. þessa, hafa flm. þess óbundnar hendur um efni þess. Var það og fyrirfram vitanlegt um að minsta kosti tvo af flm., að þeir voru ósamþykkir sumum atriðum frv., þótt það væri sitt á hvorn veg. Og samhliða því að gerast flm. frv. flutti jeg breytingartillögu um að nema burt agnúa, sem jeg taldi vera á frv., og sú tillaga liggur nú hjer fyrir á þingskjali 86.
En áður en jeg sný mjer að brtt. langar mig til þess að fara nokkrum orðum um nefndarálit hv. allshn., sem haft hefir þetta mál til meðferðar.
Jeg þakka háttv. nefnd það ekki, þótt hún játi, að það sje misrjetti í núgildandi kosningalögum, að menn missi kosningarrjett sinn fyrir þá sök, að þeir hafa „ofþyngd ómegðar“ eða vegna óviðráðanlegra óhappa, t. d. sjúkdóms og heilsubilunar, en hitt lái jeg nefndinni, þegar hún er búin að gera þessa játningu, að þá skuli hún samt sem áður komast að þeirri niðurstöðu, að hún geti ekki mælt með því, að þessum mönnum sje veittur kosningarrjettur og kjörgengi, af því að ekki sje hægt að aðgreina þá frá öðrum, sem verða styrkþegar fyrir dáðleysi sitt og kæruleysi.
„Það er betra, að sekur sleppi, en að saklaus verði dæmdur,“ segir gamalt og gott máltæki.
En háttv. allshn. vill fara dálítið öðruvísi að. Til þess að hinir seku sleppi ekki, þá vill hún vinna það til, að hinir saklausu verði líka dæmdir, þrátt fyrir það, þó hún viðurkenni, að hinir saklausu sjeu miklu fleiri en hinir seku. Því hún segir í nál., að þessar ástæður, þ. e. sjúkdómar, heilsubilun og ómegð, sjeu „ekki ætíð“ orsök til styrkþágu, og verður það naumast skilið öðruvísi en svo, að hitt sjeu undantekningarnar, og er það líklega óafvitandi rjett hjá hv. nefnd, þó hún raunar vilji draga úr þessu með því að segja rjett á eftir, að það megi „tíðum“ öðru um kenna. En það stenst ekki við hliðina á hinu. Og það, sem merkilegra er, hún byggir niðurstöðu sína um að fella frv. að nokkru á þessum undantekningum.
En hefir nú háttv. nefnd gert sjer ljóst, hve marga er hjer um að ræða, sem segja mætti um að sveitarstyrks nytu vegna „leti og ómensku“, eins og nefndin er að tæpa á í áliti sínu? Jeg verð að efast um það, að minsta kosti að því er Reykjavík snertir, en það skiftir nú mestu máli, hvernig ástandið er þar í þessu efni, því fyrir hana er þetta frv. gert, og hún á undir því að búa, ef það verður að lögum.
Þegar þetta frv. var til umræðu í bæjarstjórn Reykjavíkur, þá var einmitt rætt um þetta atriði, hve margir þeir mundu vera af styrkþegum, sem segja mætti um að styrk hefðu þegið vegna ómensku og annara sjálfskaparvíta. Nefndin í bæjarstjórninni, sem hafði frv. til meðferðar, rannsakaði þetta, og hún skýrði frá því í bæjarstjórninni, að þessir styrkþegar væru svo hverfandi fáir, að það væri algerlega ástæðulaust að undanskilja þá í frv., enda mætti á annan hátt taka af þeim kosningarrjettinn: með því að svifta þá fjárforræði. Og þá því síður hitt, að láta alla hina gjalda þessara sárfáu og láta alla styrkþega vera framvegis beitta því ranglæti, sem hingað til hefir því miður tíðkast, að vera sviftir mannrjettindum. Og um þetta var lítill ágreiningur í bæjarstjórninni. Og jeg man ekki, hvort nokkur greiddi atkv. gegn þessu þar. Og núna nýskeð hefi jeg átt tal um þetta við borgarstjóra Reykjavíkur, og hann hefir tjáð mjer, að þeir menn, af öllum styrkþegum bæjarins — líklega um 300 alls — sem það mætti segja um, að fengju styrk vegna ómensku, væru ekki fleiri en 6 talsins, eða ca. 2% af styrkþeginn.
Þegar nú þetta er upplýst fyrir háttv. nefnd, þá finst mjer hún vel geta snúið frá villu síns vegar og samþykt þessi ákvæði frv. Og það því fremur, sem hægt er að svifta þessa fáu menn fjárforræði samkvæmt heimild í fátækralögunum, og þá missa þeir kosningarrjettinn um leið, og þá gæti nefndin verið ánægð. Þegar þess er nú enn fremur gætt, að kjósendur til bæjarstjórnar í Reykjavík eru líklega eitthvað talsvert á 8. þúsund — eða yfir 8 þúsund — þá getur það ekki ráðið miklu um úrslit kosninga, þó að þeim fáu hundruðum, sem sveitarstyrk þiggja, væri veittur kosningarrjettur, og væri bætt fyrir það margra ára ranglæti, sem þessum mönnum hefir verið sýnt. Jeg held sannarlega, að sú tilfinning, að vera upp á aðra kominn, sje flestum þeirra nógu sár fyrir því, þó þeir sjeu ekki líka sviftir öllum mannrjettindum. Baslið og bágindin eru þeim nóg raun og áhyggjuefni, þó þessu sje ekki bætt þar á ofan, sem þar að auki getur ekki haft hina minstu skaðvænlegu þýðingu fyrir þjóðfjelagið.
Þó mjer líki nú ekki vel og þyki næsta undarleg niðurstaða háttv. nefndar um þetta efni, þá eru þó ummælin. í sambandi við þetta mjer talsvert ánægjuefni, sjerstaklega þar sem nefndin talar um ákvæðin í berklaveikisfrv. og breytingarnar á 77. gr. sveitarstjórnarlaganna — sem mun reyndar eiga að vera fátækralaganna — og kallar þær breytingar „spor í rjetta átt“, en þetta eru einmitt breytingar um, að það skuli ekki varða rjettindamissi, þótt menn verði styrkþegar vegna veikinda, eftir því sem þar er nánar tiltekið. Og það er ekki einasta það, sem gleður mig, að nefndin virðist hafa fallist á þessar breytingar á fátækralögunum, heldur líka hitt, að hún virðist tilleiðanleg til að ganga enn lengra. Og jeg er að hugsa um að nota þennan góða vilja háttv. nefndar í þessu efni og vona, að jeg fái tækifæri til þess bráðlega að tala um þetta í góðu tómi við háttv. nefnd.
Ein af ástæðum háttv. nefndar til að leggja á móti frv. er það, að það sje tæplega rjett að semja sjerstök lög um kosningarrjett og kjörgengi fyrir Rvíkurkaupstað út af fyrir sig, heldur beri að athuga þetta í sambandi við kosningar til bæjar- og sveitarstjórna yfirleitt, svo að samræmi verði í lögum þessum um land alt.
Jeg er dálítið hræddur um, að nefndin hafi ekki athugað þessa hlið málsins nægilega vel. Við 1. umr. þessa máls var einhverju á þessa leið skotið fram af samþingismanni mínum, hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.). Og þó að honum sje nú trúað vel og till. hans þyki sumar viturlegar, þá skaðar ekki, þó þær sjeu eitthvað nánar athugaðar. En nefndin virðist hafa gleypt þessa flugu alveg umhugsunarlaust og notar hana nú sem átyllu gegn frv.
Það, sem hefir vakað í þessu efni fyrir hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.), býst jeg við að hafi helst verið sá erfiðisauki, sem það hefir í för með sjer að semja kjörskrá eftir öðrum reglum til bæjarstjórnarkosninga en til alþingiskosninga, eins og nú er hjer í Rvík. En nú skulum við athuga, hvernig þessu er varið í öðrum kaupstöðum landsins.
Í 3. gr. í bæjarstjórnarlögum Akureyrar, nr. 65, frá 14. nóv. 1917, segir svo: Kosningarrjett hafa allir bæjarbúar, konur og karlar, sem eru 25 ára að aldri og hafa átt lögheimili í bænum eitt ár, þegar kosning fer fram, og fullnægja að öðru leyti skilyrðum fyrir kosningarrjetti til Alþingis.“
Og í 5. gr. laga um bæjarstjórn Ísafjarðar, nr. 62, frá 14. nóv. s. á., er nákvæmlega sama orðalagið og í lögunum fyrir Akureyri.
Enn er í lögum nr. 26, frá 22. nóv. 1918, um bæjarstjórn Vestmannaeyja, 7. gr., tekið upp samhljóða ákvæði úr bæjarstjórnarlögum hinna kaupstað anna.
Og loks eru lög nr. 58, frá 28 nóv. 1919, um bæjarstjórn á Siglufirði.
Hjer er fullkomið samræmi á milli kosningalaganna fyrir þessa kaupstaði og milli kosningalaga til Alþingis. Og Siglufjarðarlögin geta verið í samræmi við þau kosningalögin, sem lengst ganga nú, eða síðar kunna að verða sett, og hefði hv. allshn. verið eins mikið kappsmál að samræma kosningalögin eins og ætla mætti af nefndarálitinu, þá var hægurinn hjá að taka óbreytta kosningalagagreinina úr lögum einhverra þeirra kaupstaða, er jeg nefndi, og bera fram sem brtt. við frv., og þá hefði því líka verið náð, að sömu kjörskrár hefði mátt nota til bæjarstjórnarkosninga og til þingkosninga. Og það sýnist ofurauðvelt að gera þetta, og má benda á till. háttv. þm. Dala. (B. J.), sem fram er komin um það að samræma löggjöfina í þessu efni.
Líka má athuga í þessu sambandi, að kosningarrjettur við kjördæmakosningar til Alþingis er nú talsvert rýmri en kosningarrjettur til bæjarstjórnar í Reykjavík. Má þar til dæmis nefna, að þeir, sem ekkert útsvar er lagt á, en þiggja þó ekki af sveit, hafa nú ekki kosningarrjett til bæjarstjórnar hjer, og þegar kosningarrjetturinn til innansveitarkosninga er orðinn þrengri en til Alþingis, þá sýnist ekki vanþörf á að breyta, og þó að nú sje rýmkað til ofurlítið meira en enn er komið á í öðrum kaupstöðum, þá sýnist það varla vera svo háskalegt. Og ber þá ekkert á milli um kosningarrjett til Alþingis og til bæjarstjórnar í Reykjavík, ef þetta frv. yrði samþykt, annað en það, að sveitarstyrkur svifti menn ekki þessum rjetti að því er til bæjarstjórnarkosninga kæmi. Og að vísu þarf ekki, að jeg hygg, svo ýkjamiklar breytingar á fátækralögunum til þess, að sveitarstyrkur svifti ekki kosningarrjetti til Alþingis. Og það getur verið, að hið háa Alþingi fái tækifæri til þeirra breytinga. Og þá er fult samræmi komið bæði hjer í Reykjavík og í öðrum kaupstöðum landsins, því að þeir fylgja kosningalögum Alþingis. Svo að þessi ástæða hv. nefndar er þar með burtu fallin.
Jeg skal þá minnast á brtt. mínar á þskj. 86.
Fyrri brtt. fer fram á það, að aldurstakmarkið í frv. sje fært úr 25 árum niður í 21.
Jeg skil nú ekki í, að nokkur maður geti látið sjer detta í hug, að þeir, sem hafa náð 25 ára aldri, sjeu miklu þroskaðri eða færari til þess að taka þátt í kosningum heldur en þeir, sem eru 21 árs. Jeg þykist sannfærður um það, að þá hafi menn yfirleitt náð þeim þroska, sem gerir þá eins færa til þess að hafa hönd í bagga um allar kosningar til opinberra starfa. Þá hafa menn að jafnaði fengið þá almennu mentun, sem menn alment fá undir lífsbaráttuna, og standa þar flestir ekki að baki þeim, sem bætt hafa við sig fáum árum.
Loks hefir löggjafarvaldið viðurkent þetta með því að veita mönnum 21 árs fult fjárræði, og verður það ekki talið minna vert, að menn megi fara með fjármuni sína og ráðstafa þeim eftir vild, heldur en þótt þeir taki þátt í kosningum. Sannarlega verður að telja það fult svo mikið vandamál að fara með þau mál, þó fyrir sjálfan sig sje. — Þjóðfjelagið er heldur ekki hlutlaust í því, hvernig sú ráðstöfun fer þeim úr hendi; ef til vill miklu fremur hið gagnstæða. Og þó hefir löggjöfin álitið þetta alveg áhættulaust.
Þá er annað atriði til samanburðar. Mönnum á tvítugsaldri er með lögum heimilað að gera þá mikilvægu ákvörðun að taka sjer konu og reisa bú, — konur hafa sama rjett mikið yngri. — Ekki verður talið, að sú ráðstöfun sje minna virði, hvorki fyrir manninn sjálfan nje þjóðfjelagið, — heldur en þó að mönnum væri leyft að taka þátt í kosningum. Af þessu má sjá, að mönnum á þessum aldri er veittur svo víðtækur ráðstöfunarrjettur, bæði fyrir sjálfa sig og aðra, að það verður ekki eftir snefill af ástæðu til þess að meina þeim að taka þátt í kosningum.
Þá hafa þær mótbárur heyrst, að meira los komist á í málum landsins, ef yngra fólkinu yrði veittur þessi rjettur. Jeg veit nú ekki, hver ástæða er til þess að gera mikið úr þessu. Það mun nú mörgum finnast, að það geti varla verið meira los en nú er í stjórnmálum vorum, og er þó ekki þessu fólki þar til að dreifa.
Unga fólkið er að jafnaði áhugasamara um mál en eldra fólkið. Og fyrir því vakir ekki annað en málefnin sjálf, — það hefir enga tilhneigingu til þess að vera að þóknast þessum eða hinum manninum með fylgi sínu, og fylgi þess á engan hátt mótað vegna eiginhagsmuna, og verður það þá varla talið skaðvænlegt.
Ungir menn hafa oft tekið mikinn þátt í kosningum og stjórnmálum landsins yfirleitt.
Vil jeg sjerstaklega benda á, að laust eftir síðustu aldamót voru það mestmegnis ungir menn, innan kosningaraldurs, sem sumpart hófu og sumpart báru uppi ákveðna stefnu í allra stærsta máli þjóðarinnar fyr og síðar. Og það er skemst frá að segja, að þetta mál, með stefnu ungu mannanna, hefir nú löggjafarþing þjóðarinnar leitt til framkvæmda á farsællegan hátt, og það með meiri eindrægni, bæði eldri og yngri, og meiri ánægju um úrslitin en annars er vant að vera hjá okkur. Sýnist mjer því, að okkar reynsla ætti ekki að fæla okkur frá því að veita nú hinu unga fólki kosningarrjett. Og jeg vænti þess, að hv. deild geti fallist á þessa brtt. mína. Og það því fremur, sem í raun rjettri er meiri hl. fyrir þessari tillögu minni í bæjarstjórn Reykjavíkur, og þar eru að minsta kosti 9 af 15 bæjarfulltrúum, sem voru með því, að aldurstakmarkið væri aðeins 21 ár, þótt svo slysalega vildi til, að nokkra af þeim vantaði á fundinn, þegar þetta var samþ.
Síðari brtt. mín er um það, að skattgjaldsgreiðslur verði ekki skilyrði fyrir því, að menn fái að nota kosningarrjett sinn. Um það þarf fátt að segja. Bæði hefir hv. allsherjarnefnd bent á, hvernig þetta ákvæði rekur sig á annað í frv., og að það mundi alls ekki koma að tilætluðum notum, og svo er líka hitt, að það mundi geta komið sjer ákaflega illa fyrir fjölda manna, t. d. í harðæri, og mundi þá koma harðast niður á fátækari hluta fólksins, sem annars að jafnaði stendur þó betur í skilum en margir þeir, sem peningaráð eru taldir hafa og mikið hafa umleikis. — Enn er það, að bæjargjöld hafa lögtaksrjett, og það sýnist varla geta verið hugsanlegt að leggja sterkara vopn í hendur bæjar- eða sveitarstjórna til innheimtu gjalda en lögtaksrjettinn, þar sem ganga má að eignum manna fyrirvaralaust, til lúkningar þessum skuldum. Og að löggjöfin fari nú að bæta því ofan á að svifta menn líka kosningarrjetti, ef þeir geta ekki greitt á rjettum tíma, sýnist því alls ekki geta komið til mála.
Jeg vænti þess því, að hv. deild geti samþ. brtt. mínar, og það því fremur, sem önnur þeirra er að minsta kosti studd í nál. hv. allsherjarnefndar. Og þá yrðu kosningalög höfuðstaðarins bæði honum til sóma og löggjafarvaldinu, sem veitti þau, og sköruðu fram úr öðrum slíkum lögum í mannúð og frjálslyndi.
Eins og jeg mintist á áðan, hefir hv. þm. Dala. (B. J.) flutt brtt. við frv., og get jeg fullkomlega fallist á þá till., og ekki síður fyrir það, að hún er víðtækari en bæði frv. og brtt. mínar og ætlast til, að þetta kosningalagafrv. gildi fyrir sveitar- og bæjarstjórnarkosningar um land alt. En jeg mun þó ekki taka till. mína aftur fyr en till. hv. þm. Dala. (B. J.) hefir verið samþ.
Hv. frsm., 1. þm. G.-K. (E. Þ.), taldi þingið hafa annað við sinn tíma að gera en að fást við þetta mál. Þessu verð jeg að mótmæla. Hjer er um mjög mikilsvert mannrjettindamál að ræða, sem skiftir miklu máli fyrir almenning að vel sje úr ráðið. Og ætti háttv. deild því síður að telja eftir þann tíma, sem fer í að ræða það, að þessi málaleitun er komin frá höfuðstað landsins.