05.04.1921
Neðri deild: 35. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í C-deild Alþingistíðinda. (2792)

70. mál, kosningaréttur og kjörgengi til bæjarstjórnar og sveitarstjórnar

Bjarni Jónsson:

Jeg var undir það búinn þegar í byrjun þessa þingfundar að syndga á móti þeim tímans straumi, sem nú bólar á í blöðum vorum, og jafnvel hjá sumum hv. þm., að varpa frá sjer stórmálunum og hafa þegjandi þing. En þm. hafa nú alment syndgað á móti þessu boðorði í dag, svo útlit er á því, að málurum framtíðarinnar gefist eigi kostur á að mála hv. þm. með stein í munninum. Annars vil jeg taka undir mál hinna tveggja hv. þm., sem á undan mjer hafa talað, og er óþarfi fyrir mig að hafa langan formála fyrir brtt. minni, því að hv. 2. þm. Reykv. (J. B.) hefir talað svo vel og viturlega í þessu máli, að það eitt ætti að nægja til þess að ráða máli þessu rjett úrslit á hvaða mannfundi sem er, ef hann annars er kominn saman til þess að gera rjett. — Er mjer ljúft að geta þessa sökum þess, að hjer var óvenjulega góð ræða flutt af nýjum þm.

Hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.) flutti líka góða ræðu og fylti út í það, sem drepið var aðeins á af hv. 2. þm. Reykv. (J. B.). Er mjer því lítið eftir skilið annað en þakka mönnum þessum fyrir ummæli þeirra og beygja mig svo fyrir straumi tímans og tala stutt. Mjer datt í hug sagan af bakaranum og smiðnum, þegar jeg las ástæðurnar, sem hv allshn. færir fyrir því að veita ekki mönnum, sein fara á sveitina, kosningarrjett.

Smiður nokkur hafði drepið mann og átti að líflátast fyrir. En í þessu sama þorpi, sem smiðurinn var í, voru tveir bakarar, og annar þeirra orðinn gamall og hrumur, en ekki nema einn smiður. Þorpsbúar komu sjer því saman um það að hengja gamla bakarann fyrir smiðinn, því að hann máttu þeir ógjarnan missa.

Hv. allshn. fer hjer nokkuð líkt að ráði sínu. Hún vill svifta þá menn, sem komast á sveitina af óviðráðanlegum orsökum og án þess að þeim verði gefin nokkur sök á því, kosningarrjettinum, vegna hinna, sem á sveitina hafa komist fyrir leti og ómensku. Ekki ómerkari maður en Ciceró gamli var þó á því að það væri betra, að tíu þjófar slyppu, en einn saklaus væri dæmdur, og jeg fæ eigi skilið annað en hv. þm. vilji ganga enn lengra og kjósi heldur að láta miljón sekra manna sleppa en að dæma einn rjettlátan.

Þá er það prúðmannlega talað af þessum mönnum, að mikill hluti styrkþega sje það af kæruleysi og dáðleysi. En þetta á ekki að eins við Reykjavík. Orðin eru töluð til allra styrkþega á landinu. Jeg hefi þó ekki þekt einn einasta mann, sem eigi þetta ámæli skilið. Og ekki held jeg, að það sje skaplyndi Íslendinga að vilja þiggja náðarbrauð. Fráleitast er þó að vilja refsa mörgum fyrir fáa. Flestir þeirra, sem styrks þurfa, eru barnamenn. Svívirðingin, sem á að refsa þeim fyrir, er sú, að þeir leggja okkur til unga fólkið. Það er glæpurinn, sem þeir fremja. Í rauninni ætti að veita þeim heiðurslaun í stað rjettindamissis.

Mjer er því ekki neitt órótt innanbrjósts. Jeg veit, að hv. þm. sjá, að till mín er sjálfsögð, og samþ. hana orðalaust. Enginn þm. hefir verið svo djarfur að segja, að það geti haft áhrif á kosningar til bæjarstjórnar eða Alþingis, hvort þessir menn hafa kosningarrjett eða ekki, því allir vita, að þeir eru af sama höfðingjabergi brotnir og hafa sama lundarlag og við hinir. Enginn er svo fífldjarfur að segja, að þurfamenn sjeu svo margir, að það geri mun við atkvgr.

Það getur verið, að einstaka menn sjeu svo skapi farnir, að þeir hati fátæklingana, hati þá fyrir það að hafa ekki haldið nógu vel á fjenu og álíti hættu stafa af þeim fyrir þjóðfjelagið. En jeg vona, að enginn sje svo blindur á Alþingi. Ef þetta hatur er svo ríkt í einstöku mönnum, þá er það vanalega af því, að þeir gæta þess ekki, að „tout comprendre c’est tout pardonner“, að skilja alt er að fyrirgefa alt. Menn leita ekki að því rjetta, þegar menn dæma. Af hverju er þetta svona? Dómarar skilja það. Alþm. ættu líka að skilja, að þeim er ekki sæmandi að reiða sleggjuna að heilum flokk, þó berja eigi einn sökudólg. Það má ekki lemja alla blint, þó nokkrir eigi það skilið.

Sumir áfellast fátæklingana, sem orðið hafa fyrir slysum. En hví ekki áfellast þá ríku líka? Margir þeirra halda virðingu sinni, þó að þeir rambi á þröskuldi betrunarhússins. Virðinguna missa þeir ekki fyr en þeir detta inn fyrir.

Jeg skal nú ekki syndga meira móti tíðarandanum, sem heimtar þegjandi þing.