03.05.1921
Neðri deild: 61. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 232 í C-deild Alþingistíðinda. (2846)

113. mál, sýslumaðurinn í Skaftafellssýslu megi fela öðrum sérstök störf

Forsætisráðherra (J. M.):

Eins og háttv. flm. (Þorl. J.) tók fram, þá held jeg, að sjaldan sje fyrirstaða á því, að stjórnarráðið leyfi sýslumanni, sem sjálfur er forfallaður, að láta hreppstjóra halda fyrir sig uppboð eða umboðsmann halda manntalsþing. Þetta hefir oft komið fyrir í Austur-Skaftafellssýslu, og aldrei verið fyrirstaða á að veita það. Jeg hefði samt ekki á móti því, að sýslumanninum þar væri veitt sú heimild, sem þetta frv. fer fram á. En jeg held, að engin nauðsyn sje á að veita sýslumönnum alment slíka heimild, því það stendur óvíða líkt á og í Skaftafellssýslum. Ef manntalsþing yfirleitt hafa nokkra þýðingu, þá er það því aðeins, að sýslumenn haldi þau sjálfir og sýslubúum gefist þar kostur á að ná tali af þeim að minsta kosti einu sinni á ári. Það væri hreinlegra að leggja manntalsþingin alveg niður heldur en farið væri að tíðka það, að sýslumenn ljetu aðra halda þau fyrir sig. Það hefir komið fram á þingi frv. um að leggja manntalsþingin niður. Jeg man, að jeg mælti þá á móti því, vegna þess, að jeg mundi frá mínum yngri dögum, að það þótti af atriði heppilegt, að sýslumenn kæmu í hreppana einu sinni á ári að minsta kosti og gætu athugað mál manna og almenningi gæfist kostur á að leita ráða hjá þeim. Nú er vitanlega margt orðið svo breytt, að ef til vill mætti leggja þau niður að meinalitlu. En mjer þykir athugavert að gefa svona almenna heimild, meðan þau haldast. Annars vil jeg skjóta því til þeirrar nefndar, sem fær frv. til athugunar, hvort hún ekki geti orðið mjer samdóma um að binda heimildina við sýslumanninn í Skaftafellssýslu. Venjulegast er nú sýslumaðurinn í Vík, og þá kostar það aðeins símskeyti að fá löggildingu, svo heimildin hefir ekki mikla þýðingu.

Heimildin til að fela hreppstjórum eða sjerstökum umboðsmönnum að halda uppboð skiftir minna máli en um manntalsþingin. Helst gæti það verið um stranduppboð. Það kemur stundum fyrir á stranduppboðum, að eigendurnir fetta fingur út í meðferð á munum sínum, og má þá búast við, að þeir vilji heldur, að sýslumenn sjálfir haldi þau.

Að lokum vil jeg sjerstaklega taka það fram, að rjettara er að binda heimildina við Skaftafellssýslu.