17.02.1921
Efri deild: 2. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í C-deild Alþingistíðinda. (2904)

29. mál, einkasala á kornvörum

Atvinnumálaráðherra (P. J.):

Jeg má til með að svara örfáum orðum hv. 2. þm. G.-K. (B. K.). Hann mintist á vörugæði, og út frá því á kolin. Vitanlegt er, að enginn gat fengið kol frá Englandi eða Ameríku, nema ósigtuð. þetta gilti auðvitað jafnt fyrir landsverslunina sem aðra. Var leitað víða, og mjer er kunnugt um, að ómögulegt var að fá þau öðruvísi. Jeg talaði við kaupmann frá Englandi um þetta. Hann sagði, að ómögulegt væri að tryggja sjer, að kolin væru góð, og menn yrðu að sætta sig við það, sem menn fengju.

Það, sem hv. þm. (B. K.) talaði um smjörlíkið, lýsi jeg ósatt. (B. K.: Ekki ósatt. Það var ekki í tíð þessa ráðh.). Alveg sama.

En það eru ekki kolin ein, sem ekki hafa verið eins góð sem skyldi. Þannig hefir t. d. rúgmjölið, sem komið hefir frá Danmörku, ekki altaf verið gott hjá landsversluninni, og ekki heldur hjá kaupmönnum. En þó fjekst ekki annað. Því að þá var ekki frjálst um þá vöru í Danmörku. En þegar frjálst val var, þá var það einnig gott hjá landsversluninni. Enginn getur neitað því, að hveiti hefir ávalt verið ágætt hjá henni, og sama má segja um sykurinn, að hann hafi vel þolað samanburð.

Samningurinn um kolin í sambandi við hestaútflutninginn var gerður 20. maí, en þá var ekki komið verðfall á flutningsgjöldum. Verðfallið kom ekki fyr en seinna sumarsins. Það er satt, að flutningsgjaldið á kolunum var hátt, samanborið við það, sem síðar varð. En þessi samningur stóð í sambandi við hestasöluna, og var sá samningur heppilegri en annað, sem um var að gera. Því ekki var hægt að selja þá hesta í Danmörku, sem sendir voru til Englands, og hefðu þeir því að öðrum kosti orðið að vera ófluttir úr landi.

Hv. þm. (B. K.) gat þess, að landbúnaðurinn bæri sig ekki með því að fóðra með útlendu fóðri. Jeg er honum sammála um það, nema ef til vill getur það komið til greina kringum kaupstaði. Hins vegar álít jeg, að ekki geti heldur komið til greina að nota síld sem kraftfóður, því jeg skil ekki, að síldarútvegurinn beri sig, nema að síldin verði seld dýrara en svo, að fært sje að nota hana sem skepnufóður í venjulegu ári. — En það veit hv. þm. (B. K.), að ekki borgar sig að fella búpeninginn, og það, sem jeg á við, er, að betra sje að kaupa útlent fóður en að fella hann. En ekki er þá heldur ætlast til, að til þess sje gripið nema í nauðsyn.

Jeg hefi ekki tækifæri til að svara öllu, því að margt hefir verið að mjer rjett. Jeg býst við að fá seinna tækifæri til þess að tala um viðskiftalífið. Þetta frv. mun og ganga í nefnd, og vona jeg, að nefndin muni tala við mig og leyfa mjer að gefa frekari upplýsingar.