01.04.1921
Efri deild: 32. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í C-deild Alþingistíðinda. (2929)

74. mál, skipun læknishéraða o.fl.

Sigurður Jónsson:

í dagskrá hv. þm. Snæf. (H. St.) felst ekkert annað en áskorun til stjórnarinnar um að láta endurskoðun á skipun læknishjeraða fara fram. Stjórnin getur ekki framkvæmt neitt, þótt hún láti rannsóknina fara fram. Öll framkvæmdin er á valdi þingsins. Jeg mun því greiða atkvæði með hinni rökstuddu dagskrá hv. þm. (H. St.).