02.05.1921
Neðri deild: 60. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í C-deild Alþingistíðinda. (2937)

114. mál, sýsluvegasjóðir

Atvinnumálaráðherra (P. J.):

Við einhverja umræðu hjer fyr í þinginu var minst á þingsályktanir frá fyrri þingum viðvíkjandi vegamálunum, og tók jeg þá lítið undir það, vegna þess, að jeg vissi, að frv. þetta, sem hjer liggur fyrir, var í smíðum, en var ekki viss um, hvort því yrði svo snemma lokið, að það yrði tekið fyrir á þessu þingi.

Nú er tækifæri til að gera nokkra grein fyrir gerðum fyrverandi og núverandi stjórna út af þál. þeim, sem samþ. hafa verið um vegamál, og þá sjerstaklega þál. frá 1915.

Með leyfi hæstv. forseta vil jeg lesa hana upp. Hún hljóðar svo:

„Neðri deild Alþingis ályktar að skora á stjórnina:

1. Að endurskoða flokkun þá til viðhalds vegum, sem er í vegalögunum 22. nóv. 1907, og leggja fyrir næsta Alþingi — ef tími vinst til — nýtt frv. til vegalaga.

2. Að leita tekjustofna handa sýslunum til að standast kostnað við viðhald á vegum, og leggja fyrir næsta þing frumvarp til laga um það efni.

3. Að taka til íhugunar, hvort eigi sje tímabært að breyta vegagerðaraðferð á vegum þeim, sem landssjóður kostar að nokkru eða öllu leyti, sjerstaklega hvort eigi beri að hafa vegina undirgrýtta („púkkaða“), og leggja fyrir næsta þing skýrslur landsverkfræðings og álit um kostnað við slíka gerð á vegum, samanborið við þá vegagerðaraðferð, sem nú tíðkast, og um haldgæði þeirra, ásamt till. landsstjórnarinnar um þetta efni.“

Þetta er víðtækasta þál., sem samþ. hefir verið um þetta efni síðan vegalögin komu.

Viðvíkjandi 1. lið, um endurskoðun á flokkun vega í vegalögunum, þá býst jeg við, að landsstjórninni hafi ekki fundist ástæða til að hafast neitt að, vegna hinnar sívaxandi dýrtíðar og hækkandi vinnulauna og alls annars kostnaðar við vegagerðir, svo að vegagerðirnar hafa í rauninni minkað þessi árin, þrátt fyrir geysiaukinn kostnað. Jeg hygg að minsta kosti, að þetta hafi ráðið því, að stjórnin hefir ekkert aðhafst í þessu máli enn sem komið er.

Jeg álít líka, að 2. liður eigi að ganga fyrir, það, að finna hæfilega tekjustofna fyrir sýslurnar til þess að standast kostnað við viðhald veganna, því á því verður að byggja, þegar gert er út um skyldu sýslnanna til þess að sjá um vegi, auk þess sem sýslurnar hafa sína eigin vegi, sem koma þarf upp. Með þetta fyrir augum hefir vegamálastjóri samið þetta frv. í samráði við mig.

Viðvíkjandi 1. lið vil jeg enn fremur geta þess, að jeg sje ekki, fremur en fyrverandi stjórnir, ástæðu til að breyta vegalögunum nú, hvorki um viðhald vega nje annað.

Þá er 3. liður þál., um að rannsaka, hvort ekki sje rjett að taka upp nýja vegagerðaraðferð, og þá sjerstaklega að undirgrýta (púkka) veginn, og fá skýrslur vegamálstjóra um það.

Það verður nú vitanlega dýrt spaug að undirgrýta vegi svo fullnægjandi sje. Þó getur verið, að vegamálastjóri geti nú þegar gefið einhverjar upplýsingar um kostnað við undirgrýtingu, í samanburði við gömlu vegagerðaraðferðina. Það hefir verið gerður dálítill vegarspotti hjer nálægt Reykjavík á þennan hátt, og gefur hann nokkra reynslu, en þó svo litla, að ekki er hægt að byggja mjög mikið á henni. Upplýsingar í þessu efni fást einungis smátt og mátt með reynslunni á þeim vegarspottum, sem hægt verður að koma upp á þennan hátt, en eins og fjárhagssakirnar standa, verður það svo lítið í senn.

Á síðastliðnu sumri fjekk ríkið talsvert af nýjum vegagerðaráhöldum, sem ekki hafa verið notuð hjer áður, og á með því að gera tilraun til að breyta vegagerðinni. En um það er ekki enn fengin nein fullnægjandi reynsla.

Bæði vegamálastjóri og landsstjórnin hafa talsvert hugsað einmitt um það, sem 3. liður fer fram á, og veltur þar mjög á því, hvernig gengur með umbót og aukning á vegagerðartækjunum. Hefir, eins og áður er sagt, verið talsverðu til kostað í þá átt. Eins og liggur í augum uppi, fæst lítið fyrir peningana í malar- og grjótflutningi, þegar hestakostnaðurinn hefir þre- til fjórfaldast og mannahaldið einnig. Það kemst því ekkert áfram, nema vinnusparandi áhöld, sem borga sig vel, fáist og hepnist, og þá fyrst er hugsanlegt að undirgrýta vegina.