09.05.1921
Neðri deild: 65. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 320 í C-deild Alþingistíðinda. (2949)
114. mál, sýsluvegasjóðir
Frsm. (Jón Þorláksson):
Jeg vil nefna það til viðbótar því, sem jeg sagði áðan, að eftir núgildandi lögum er ekki gerður greinarmunur á því, hverjir gjaldendur hafi not sýsluveganna og hverjir ekki. Það er jafnað niður eftir efnum og ástæðum innan hreppanna, en á hreppana eftir tölu verkfærra manna, og kemur því gjaldið til vegaviðhalds ekki við nothæfi þeirra fyrir einstaka gjaldendur. Ástæður hv. 2. þm. Árn. (Þorl. G.) geta því eins átt við skipulagið, sem nú er. Jeg vil ekki halda því fram, að frv. sje fullkomlega rjettlátt, en með því er þó stigið spor áfram frá því, sem nú er.
Annars hefði jeg kunnað betur við, að hv. þm. (Þorl. G.) hefði sagt okkur eitthvað frá fyrirætlunum sínum um breytingar á frv., eða annað frv. í þess stað. Það er auðvelt að finna að þessu frv., en svo er eftir að vita, hvort hægt er að benda á annað betra í þess stað. Hv. þm. (Þorl. G.) ætlar að láta það bíða næsta þings, og verður það þá vonandi merkilegt, eftir svo langan tíma. Auðvitað verður þessi skattur óvinsæll, en svo er um alla skatta, og er það út af fyrir sig því ekki rjettmæt ástæða gegn frv.