21.02.1921
Neðri deild: 5. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 160 í B-deild Alþingistíðinda. (296)
9. mál, aukatekjur ríkissjóðs
Fjármálaráðherra (M.G.):
Eins og vikið er að í ástæðunum fyrir þessu frv., ber að skoða aukatekjurnar sem borgun af hálfu ríkisborgaranna til ríkissjóðs fyrir það, að hann launar embættismönnum, er svo framkvæma ýms verk fyrir borgarana. Þegar nú ríkið verður að borga þessum embættismönnum miklu hærri laun en áður var, er það ekki nema eðlilegt, að borgun fyrir verk þeirra hækki eitthvað. Á þessu er frv. þetta bygt, en hækkunin, sem frv. gerir ráð fyrir, er þó ekki hlutfallslega eins mikil og launahækkun embættismanna, og sumstaðar er engin hækkun, einkum þar, sem stimpilgjaldið nær til.
Jeg legg til, að frv. verði, að lokinni þessari umr., vísað til fjárhagsnefndar til athugunar.